JÓN HELGASON Bókasafn Brynjólfs biskups 1 Um bókasafn Brynjólfs biskups Sveinssonar leikur meiri ljómi en um nokkurt safn annað sem einstakur maður hefur átt á íslandi. Því valda hinar frábæru skinnbækur sem um eitt skeið voru í eigu hans og hann gaf síðan Danakonungi, svo sem al- kunnugt er. Hér verður ekki vikið að þessari hlið á bókasöfnun Brynjólfs biskups, enda hefur áður verið dregið fram allt sem um hana verður rakið. Tilgangur þessarar ritgerðar er að tína saman það sem unnt er að finna um prentaðar bækur í safni hans. Af þeim hluta safnsins fór einnig mikið orð, enda eflaust betri bókakostur þá í Skál- holti en nokkurs staðar annars á Islandi. En að vísu hefur safn biskups verið harla smávaxið hjá því sem sumir miklir safnendur áttu í öðrum löndum, þar sem bækur voru auðfengnari en á yzta hjara hins menntaða heims. Þegar að því var komið fyrir biskupi að hann mundi senn leysa upp landtogin og fara í annað ljós, tók hann að ráðstafa eignum sínum, þar á meðal bókum. Undarlegt er að í bréfabókum hans eru engin gögn um það hvernig hann skipaði til um bækur sínar, þó að annars sé þar fjöldi skilríkja um fjármuni hans og eignir. Aftur er ákvæða hans um bækurnar getið í Fitjaannál (Annálar 1400—1800 II 233—34), Hestsannál (sama rit II 503) og Biskupasögum Jóns Halldórssonar (I 300), alls staðar með sömu orðum, enda sami höfundur að tveimur þessara rita. Islenzkum bókum sínum skipti biskup til helminga milli tveggja kvenna sér nákominna, Helgu Magnúsdóttur í Bræðratungu og Sigríðar Halldórsdóttur konu séra Torfa Jónssonar í Gaulverjabæ; meðal þessara bóka nefnir Jón Halldórsson sérstaklega til „sögur og aðskiljanlegar skrifaðar fræðibækur". En latneskar bækur og grískar („og í öðrum tungumálum" bætir Jón Halldórsson við) ánafnaði biskup eftir sinn dag kornungum syni Jóhanns Kleins fógeta á Bessastöðum. Þess er getið að menn hafi haldið safnið eigi minna en 1000 dala virði. Annálar geta þessara tíðinda við árið 1673. Biskup var á þingi það sumar að vanda, en Jóhann Klein „kom seint að landi og náði varla alþingi". Þórður Daðason, eina afkvæmi biskups á lífi og erfingi að öllum eignum hans, dó í Skálholti 12. júlí,