Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Blaðsíða 127
JÓN HELGASON:
Blað Landsbókasafns úr Heiðarvíga sögu
1
Á árunum 1682—83 þegar Jón Eggertsson var á Islandi aS kaupa handrit handa
Svíum, komst hann meðal annars yfir skinnbók sem á voru fjórar sögur: HeiSarvíga
saga, Gunnlaugs saga, Hrólfs saga Gautrekssonar og Ólafs saga Tryggvasonar (eftir
Odd munk). Þessi skinnbók er nú Perg. 4to nr. 18 í konungsbókhlöSunni í Stokk-
hólmi.1
HeiSarvíga saga var á 17. öld hvergi til, svo aS kunnugt sé, utan þessarar einu skinn-
bókar og sagan var aldrei skrifuS upp áSur en bókin væri flutt úr landi. Sá hluti bók-
arinnar sem sagan var á, hefur orSiS fyrir miklum áföllum bæSi áSur og síSan:
1. Fremstu blöS sögunnar voru týnd framan af áSur en bókin barst Jóni Eggerts-
syni í hendur. Liklega vantar þar heilt kver. Á þessu tjóni verSur engin bót ráSin.
2. Árni Magnússon hafSi spurnir af sögunni eftir aS hún var komin til Stokkhólms
og fekk hana léSa til Kaupmannahafnar til uppskriftar áriS 1725. Sagan tók þá yfir
hálft 24. blaS, en þeir sem hana varSveittu í Stokkhólmi sendu ekki nema þau 12 sem
fremst voru. ÞaS má vel vera aS ástæSan hafi veriS fáfræSi ein og hafi vörzlumönn-
unum veriS um megn aS finna hvar ein sagan endaSi og önnur tók viS (þaS gat villt
þá aS Jón Eggertsson hafSi talaS um Víga-Styrs og Víga-BarSa sögu, svo sem væru
sögurnar tvær). Hafi svo veriS, þá er hér eitt öruggt dæmi þess aS gifta fylgi fáfræð-
inni, því að eldurinn í Kaupmannahöfn 1728 eyddi öllum þessum blöðum og hefði ekki
IátiS sig muna um þó fleiri hefðu verið. Jón Ólafsson úr Grunnavík hafði áður skrif-
aS upp texta blaðanna, en uppskrift hans týndist um leiS og þau; þegar svo var komið,
skrásetti hann eftir minni allt sem hann gat rifjað upp af sögunni, og var það eftir at-
vikum furðu mikið. Þessi hluti sögunnar er aðeins til í endursögn hans.
3. Af síðara hluta sögunnar, sem eftir varð í Stokkhólmi, er það að segja að fremst
er eitt kver (8 blöð), óskert að öðru leyti en því að 16. blaSsíðan er svo illa leikin og
1 Sjá einkum V. Gödel, Katalog öfver kongl. bibliotekets fornislándska och fornnorska handskrif-
ter, 1897—1900, bls. 59—62, Ileiðarvíga saga ved Kr. KSlund, 1904, bls. 1 o. áfr., íslenzk fornrit III,
1938, bls. xcviii o. áfr. Eftirmynd skinnbókarinnar er í Access. 24 í Árna Magnússonar safni; ég hef
notað hana við samningu þessarar ritgerðar, en ekki haft frumbókina sjálfa.