LANDSBOKASAFNIÐ 19531954 9 í þessari gjöf frúarinnar og mega íslendingar vera henni þakklátir fyrir þá hugulsemi að láta ættland tónskáldsins njóta þessara minja um höfund lagsins við lofsönginn, sem brátt varð þjóðsöngur Islendinga. Á öðrum stað í þessu riti er birt grein um Sveinbjörn Sveinbjörnsson ásamt skrá þeirri um tónverk hans, sem frúin sendi safninu. Af skránni sést, að enn eru mörg tón- verk Sveinbjórns óútgefin og lítt kunn. Gefst nú áhugamönnum í tónlist tækifæri til að kynna þjóðinni verk hans í heild. Hér fer á eftir stutt greinargerð um aðrar handritagjafir, sem borizt hafa Landsbóka- safninu eftir að síðasta Árbók var prentuð, og eru gefendur taldir í stafrófsröð: Agnar Kl. Jónsson, sendiherra í London: Niðjatal Jóns Borgfírðings. Ásmundur Guðmundsson, biskup, Reykjavík: Prédikanir og tækifærisræður séra Guðmundar Helgasonar frá Reykholti, föður gefanda, og Sálmasafn eftir síra Stefán Thorarensen að Kálfatjörn. Biskupinn hefir einnig afhent mikið safn handrita úr dán- arbúi föðurbróður síns, síra Magnúsar Helgasonar skólastjóra. Er þar bréfasafn hans, ræður, fyrirlestrar, dagbækur og ýms önnur plögg úr fórum þessa merka manns. Gjöf- inni fylgir skrifpúlt síra Magnúsar og fleiri minjar. Asmundur Jónsson, trésmíðameistari, Reykjavík: Vísnasamtíningur o. fl. úr fórum Jóh. Ásgeirs Jónatanssonar Líndals frá Miðhópi, er fluttist vestur um haf. Baldur Steinbach, Reykjavík: Ýmiss konar samtíningur úr fórum dr. Jóns Stefánsson- ar, sendibréf, kvæði á ensku, frumort og þýdd, og margt fleira. Bæjarstjórn Reykjavíkur: Ljósprentun af nokkrum blöðum úr Hauksbók í vandaðri möppu. Frumeintak þessarar ljósprentunar gaf bæjarstjórnin Oslo-borg á 900 ára af- mæli hennar. Davíð Björnsson, bóksali, Winnipeg: Ferðasaga vestur á Kyrrahafsströnd sumarið 1950. Vélritað handrit með innlímdum myndum. Eggert P. Briem, Reykjavík: Plögg af ýmsu tagi úr dánarbúi Skúla Arnasonar læknis, þar á meðal gamalt Jónsbókarhandrit, sendibréf, ættfræðidrög, vísnatíningur og fleira. Eggerl Halldórsson, ísafirði: Kvæðasafn, skrifað af Halldóri Jónssyni í Miðdalsgröf. Finnur Guðmundsson, dr., Reykjavík: Dagbókarbrot Sir Josephs Banks úr Islands- ferðl772 (fótostat). Halldór Halldórsson, dósent, Reykjavík: Frumsamdar og þýddar ritgerðir eftir Torfa Bjarnason í Olafsdal. Dánarbú síra Halldórs Jónssonar á Reynivöllum: Prédikanir og tækifærisræður síra Halldórs. Hólmgeir Þorsteinsson frá Grund í Eyjafirði: Kvæðatíningur, sendibréf og ýmislegt fleira úr Eyjafirði. Merkast í þessari gjöf er eiginhandarrit Jónasar Hallgrímssonar að erfiljóðum hans um Bjarna Thorarensen skáld. Ingibjörg Jónasdóttir, frú, Reykjavík: Prédikanir, tækifærisræður og sendibréfasafn, er maður gefanda, síra Sveinn Guðmundsson, lét eftir sig. James Whittaker, London: Eiginhandarrit að ferðabók J. Barrow's: A visit to Ice- land . . . in the summer of 1834. Sami maður hefir gefið tuttugu eftirmyndir lögreglu _