BENEDIKT SVEINSSON fyrrverandi bókavörður við Landsbókasafnið andaðist aS heimili sínu í Reykjavík 16. nóv. 1954 nær 77 ára að aldri. Hann var fæddur í Húsavík við Skjálfanda 2. desember 1877. Foreldrar hans voru Sveinn Víkingur Magnússon, veitingamaSur þar, og kona hans, Kristjana SigurSar- dóttir frá Hálsi í Kinn. Hann lauk stúdentsprófi 1901, hóf síðan guSfræSinám, en hvarf frá því og tók að gefa sig að stjórnmálum og blaðamennsku. Hann var ritstjóri Ingólfs 19051909 og aftur 19131915, Fjallkonunnar 19101911 og Þjóðarinnar 1914 1915. Hann lét stjórnmál mjög til sín taka og var jafnan framarlega í flokki þeirra manna, er mestar kröfur gerðu Islandi til handa. Hann var þingmaður Norður-Þingey- ínga 19081931 og forseti neðri deildar 19201930. Hann sat í mörgum opinberum nefndum og trúnaðarstöðum, gegndi meðal annars bankastjórastörfum í Landsbankan- um um skeið. Hann var aðstoðarbókavörður við Landsbókasafnið 19151916 og aftur 19311941. Eftir það varð hann skjalavörður í Þjóðskjalasafninu og gegndi því starfi unz hann lét af því fyrir aldurs sakir. Benedikt vann mikið og gott starf viS útgáfu Islendingasagna fyrir SigurS Kristjáns- son og lagSi þar margt til mála, sem hefir varanlegt gildi. Hann var þaulkunnugur forn- sogum vorum og öSrum íslenzkum bókmenntum aS fornu og nýju. LeituSu því margir