124 BALDURANDRESSON taka upp úr grein hans skemmtilega frásögn um það, hvernig Sveinbjörn festi sér konu: Oft heyrir maður talað um ást við fyrstu sýn". En Sveinbjörn steig þar feti framar. Vorið 1889 var hann eitt sinn staddur hjá vinafólki sínu, skozku, og barst þá í tal sumar- frí. Segir frúin á heimilinu, að þau séu að hugsa um skemmtiferð til fjarða Noregs, og býður honum að slást í förina með þeim. Á stofuborðinu var ný mynd af ungri blóma- rós, er hann hafði eigi áður séð. Hann spyr, hver þessi stúlka sé, og segir frúin, að þetta sé systurdóttir sín, og búi hún með móður sinni og systkinum úti í Pertshire. Svarar hann þá: Ef þér stendur á sama, frú mín góð, þá vildi ég heldur fá kynningarbréf til systur þinnar og frændfólks, en fara með ykkur til Noregs." Var það auðfengið, og kom hann harðtrúlofaður til baka úr því sumarorlofi. Stúlkan hét Eleanor Christie, dóttir John Christie, M.A., vel menntaðs lögfræðings, frá Banff, er þá var látinn, og Williamina Paterson frá Aberdeen, konu hans. Eleanor var vel menntuð og glæsileg og stóð á tví- tugu (f. 1870); en Sveinbjörn var þá vel yfir fertugt. Þau giftust á næsta ári (1890) og reistu bú í Edinborg. Þar bjuggu þau samfleytt 29 ár, eða til þess tíma, að þau fluttu með börnum sínum hingað til Winnipeg um haustið 1919. Á næstu tveimur árum, eftir að þau giftust, eignuðust þau tvö börn, dreng og stúlku. Drengurinn, Þórður John Wilhehn, var fæddur 2. apríl 1891 og dóttirin, Helen McLeod, 3. desember 1892. Þórður útskrifaðist frá háskóla Edinborgar í læknisfræði vorið 1914. Hann vann sem læknir, með kapteins nafnbót, í tvö ár í heimsstyrj öldinni 19141918, oft við fremstu víglínu, og bilaði þá heilsa hans í þeirri ofraun. Síðar stundaði hann lækningar víðsvegar í Vestur-Canada um nokkur ár. Hann er listfengur mjög, leikur vel á píanó og málar; er ókvæntur og þykir nokkuð einrænn. Helen útskrifaðist frá Lista- skólanum í Edinborg í fögrum listum og tók kennarapróf árið 1915. Er hún fríð sýnum, listræn mjög og vel skáldmælt. Hún kenndi dráttlist í Skotlandi um tíma og síðar í Can- ada. Árið 1921 giftist hún Ralph Ernest Alwyn Lloyd, liðsforingja úr stríðinu. Hann er fyrir skemmstu látinn. Þau Helen og Ralph Lloyd eignuðust fjögur börn. Fyrsta barnið, Benjamín Bertie Sveinbjörn, dó innan árs frá fæðingu. Næstur var Francis Charles Sveinbjörn, fæddur 1923, þá Eleanor, fædd 1924; yngstur er Jón Edric Shenstone McLean, fæddur 1926. Báðir gengu drengirnir í herinn og komu heilir á húfi til baka úr síðustu styrjöld. Sveinbjörn hinn yngri kom heim kvæntur skozkri stúlku, og hefir nú nýskeð eignast dóttur; svo gamla konan er nú orðin langamma. Er hún komin hátt á áttræðisaldur og ber ellina vel. 011 fjölskyldan býr vestur í Alberta-fylki, ekki langt frá Calgary-borg." Þrisvar fór Sveinbjörn til Vesturheims. Fyrsta ferðin var gerð í sept. 1911. Hélt hann þá til hjá séra Jóni Bjarnasyni í Winnipeg og frænku sinni, frú Láru, konu hans. Hann hélt fyrirlestra um norræn þjóðlög og hélt hljómleika, bæði í Winnipeg og út um byggð- ir Islandinga. Um vorið 1912 hélt hann aftur yfir hafið til Skotlands, eftir að landar hans höfðu haldið honum veglegt skilnaðarsamsæti og leyst hann út með gjöfum. Þeir gáfu honum til minja gervipíanó úr skíru silfri, með viðeigandi áletrun og allstórri gull- fúlgu undir lokinu.