SVEINBJORN SVEINBJORNSSON TONSKALD 129 geta tjáð það í tónum, sem bærðist í brjósti hans, á þann hátt sem hann vildi. Þess vegna falla lag og Ijóð í íaðma. Sverrir konungur" er svipmikil ballata og fellur lagið alls staðar vel að textanum. Það missir því ekki marks, sé það vel sungið af góðum radd- manni. Gísli Jónsson ritstjóri hyggur, að þar kenni óbeint áhrifa frá kóral Lúters Vor guð er borg á bjargi traust". Ég vil ekkert um það fullyrða, en hitt er víst, að þegar í upphafi lagsins og forspilinu er um greinileg áhrif að ræða frá Tannháuser-marsin- um" eftir Wagner. Þetta dregur þó á engan hátt úr heiðri höfundarins. Lagið er sjálf- stæð og persónuleg tónsmíð, eins og bezt verður á kosið. I Spretti" er fákurinn á harða- stökki. (Eins er það í þjóðlaginu Ólafur og álfamær", sem Sveinbjörn raddsetti fyrir söngrödd með píanóundirleik og einnig fyrir karlakór). I Hvar eru fuglar" er angur- vær saknaðarblær. Hvergi verður vart við mikinn sársauka eða kvöl í tónsmíðum hans, jafnvel ekki þar, sem þess væri að vænta, eins og í The Viking's Grave". Sorgin er þar með notalegum þunglyndisblæ. Mendelssohn sagði einhverju sinni við nemanda sinn, sem fært hafði honum nýja tónsmíð til yfirlesturs: Þessir hljómar eru ekki gentlemanlike". Hann notaði enska orðið. Honum fannst raddfærslan ruddaleg. Það hefði engin hætta verið á því, að Svein- björn hefði sætt slíkri aðfinnslu, hefði hann verið nemandi hans. Tónsmíðar hans eru fágaðar og göfugar. Kórlögin eru mikið sungin hér á landi. Samband íslenzkra karlakóra gaf út árið 1932 ;,Tólf sönglög fyrir karlakór" eftir hann. Meðal þeirra er þjóðsöngurinn. Enn- fremur eru í heftinu þessi alþekktu lög: 0, blessuð vertu sumarsól", 0, fögur er vor fósturjörð", Drottinn, sem veitti frægð og heill til forna", Töframynd í Atlantsál", Lýsti sól", Dettifoss", Fífilbrekka" (þjóðlag) Er vindur hvín", Olafur og álfa- mær" (þjóðlag) o. fl. Kórstíll Sveinbjarnar er í mörgu frábrugðinn því, sem við áttum að venjast hjá eldri tónskáldum okkar. Hann samdi oftast lagið við öll erindin, og hafði yndi af að láta raddirnar ganga á víxl og flétta þær saman. Er þessi kórstíll fjölbreyttur og skemmti- legur. Páskadagsmorgunn", samið fyrir blandaðan kór, er orðinn fastur liður í guðþjón- ustunni hjá okkur í dómkirkjunni hvern páskadagsmorgun. Um píanótónsmíðar hans verö ég fáorður. Ég þekki því miður ekki nema þrjár: Vikivaka", samið um þjóðlögin, GóSa veizlu gjöra skal" og Hér er kominn Hoff- inn", og svo Idyl", samiS um þjóSlagiS StóS ég úti í tunglsljósi". BæSi þessi lög hefir Emil Thoroddsen spilaS inn á hljómplótur og þau heyrast viS og viS flutt í útvarpinu. ÞriSja lagiS er Pastorale". Fiðlutónsmíðar hans nokkrar hafa verið fáanlegar hér í bókabúðum, en heyrast þó sjaldan leiknar. Romanza", Vögguvísa" og Moment musical" eru lítil og lagleg lög. Humoresque" er fagurt og skemmtilegt fiðluverk. Mér fyndist það viðeigandi, að rík- isútvarpið léti góðan fiðluleikara leika þessi lög inn á stálþráð eða hljómplötur, svo landsmönnum gefist kostur á að kynnast þeim.