LANDSBOKASAFNIÐ 1959-1961 Gjöf Davíðs Stærsta bókagjöfin, sem Landsbóka- Björnssonar safninu hefir hlotnazt síðan Arbók var prentuð síðast, er frá Davíð Björnssyni bóksala í Winnipeg, um eða yfir þúsund bindi íslenzkra bóka. Um helmingur þessa safns er íslenzk rit, eða rit eftir íslenzka menn, prentuð vestanhafs. í samráði við gefandann hefir verið ákveðið, að gjöf þessi verði stofn að sérdeild vestur-íslenzkra rita í Landsbókasafninu, og verði síðan leitazt við að fylla í skörðin unz fengið er á einn stað allt smátt og stórt, sem Islendingar vestanhafs hafa látið prenta þar, hvort sem ei á íslenzku eða öðrum málum. Landsbókasafnið á að vísu flest vestur-íslenzk rit, sem út hafa verið gefin, og er þeim raðað eftir efni með jyavio- BjSrnsson öðrum íslenzkum bókum. Verður sú tilhögun óbreytt. Hins vegar gefst nú tækifæri til að koma upp sérdeild þessara rita, sem geymd verður ásamt öðrum íslenzkum tvítökum og ekki höfð til notkunar nema sérstaklega standi á. Hlutdeild Vestur-íslendinga í útgáfu íslenzkra bóka og tímarita er svo merkileg og virð- ingarverð, að vel þykir hæfa að til sé í þjóðbókasafni íslendinga sérdeild rita þeirra, lil minningar um tryggð þeirra og ræktarsemi við íslenzka tungu og bókmenntir. Davíð Björnsson hefir einnig gefið Landsbókasafninu allmörg bindi handrita, sem hann hefir sjálfur samið og skrifað og bundið í gott band. Eru þar ljóðmæli hans; skáldsögur, ferðaþættir, endurminningar og fleira. Ennfremur hefir hann gefið nokkrar möppur með blaðaúrklippum og Ijósmyndum, þar á meðal safn greina og myndá úr kanadiskum blöðum frá för forseta íslands til Kanada sumarið 1961. Eru möppur þess- ar góðir safngripir og frágangur þeirra allur hinn snyrtilegasti. Davíð Björnsson er Húnvetningur að ætt, fæddur 1890. Hann lauk prófi við búnað- arskólann á Hólum 1914, hóf síðan smíðanám og stundaði þá iðn um skeið. Vestur um haf fluttist hann árið 1924 og hefir síðan átt heima í Winnipeg, stundað þar bóksölu og fleiri störf og tekið drjúgan þátt í félagssamtökum og þjóðræknismálum Islendinga vestan hafs, skrifað í blöð og verið um tíma ritstjóri Heimskringlu í forföllum aðal- ritstjóra. Hann hefir um langt skeið verið umboðsmaður Landsbókasafnsins vestan hafs og er enn. Hefir hann jafnan reynzt vel í því starfi og látið sér annt um að útvega safninu öll vestur-íslenzk rit jafnóðum og út voru gefin. Landsbókasafnið þakkar Davíð Björnssyni þessa veglegu gjöf og vinarhug til landsins. Handritasafníð í Árbók 19551956 var síðast birt yfirlit um handrit, sem Lands- bókasafnið hafði á þeim árum fengið að gjöf. Síðan hafa margir gefið safninu handrit, en nokkur hafa verið keypt. Kennir þar margra grasa og má einkum nefna bréfasöfn, dagbækur, endurminningar, sögur og kvæði, prédikanir og tækifærisræður nokkurra presta o. fl. Það mundi taka of mikið rúm að birta hér skrá