6 LANDSBOKASAFNIÐ 19591961 um handritin og lýsa efni þeirra, enda eru sum þeirra ekki til afnota fyrst um sinn, svo sem ung bréfasöfn og fleira. Verður hér aðeins drepið á fátt eitt. Soffanías Þorkelsson verksmiðjueigandi í Winnipeg, sem mörgum er að góðu kunn- ur hér á landi, færði safninu að gjöf sumarið 1960 mikið safn sendibréfa, sem honum hafa borizt á langri æfi. Fyrir tuttugu árum sendi hann safninu nokkurn hluta bréfa sinna, og hafa þau verið geymd óskrásett í lokuðum kassa. Verða söfn þessi nú samein- uð, en ekki höfð til afnota fyrst um sinn. Theodóra Hermann, hjúkrunarkona í Winnipeg, hefir á síðustu árum gefið safninu allmargt merkilegra bréfa til fósturforeldra sinna, sr. Jóns Bjarnasonar og frú Láru konu hans. Hún hefir einnig gefið stóra möppu með innfestum fjölda Ijósmynda úr fór- um þeirra, skrifað sjálf nöfn við myndirnar og nokkrar skýringar. Er þetta hinn bezti gripur. Á öðrum stað er getið handritagjafar Davíðs Björnssonar. En fleira hefir borizt vest- an um haf. Systurdóttir Valtýs Guðmundssonar háskólakennara hefir gefið merk hréf frá honum, er hann um langt árabil, allt frá fyrstu skólaárum, hefir skrifað móðin- sinni, stjúpa og systrum, til Winnipeg. Stefán Einarsson, prófessor í Baltimore. hefir sent dagbækur Ingibjargar Hóseasdóttur, mörg bindi, ásamt nokkrum bréfum til henn- ar. Frú Rannveig K. G. Sigbjörnsson, Sask., Kanada, hefir gefið endurminningar, rit- gerðir og fleira. Þá hafa safninu borizt allmörg handrit vestan um haf að tilhlutun sr. Benjamíns Kristjánssonar, þar á meðal ýms plögg úr fórum sr. Adams Þorgrímssonar. Dr. Alexander Jóhannesson prófessor og kona hans, frú Heba Geirsdóttir, hafa gefið og afhent safninu ýms merk handrit, þar á meðal bréf og skiöl úr búi Jóns Magnússonar forsætisráðherra og konu hans, frú Þóru Magnússon. Einar Guðmundsson frá Hraunum hefir gefið allmikið safn handrita úr fórum föð"" síns, Guðmundar Davíðssonar bónda á Hraunum. Kennir þar margra grasa, því að Guðmundur var fróðleiksmaður eins og ættmenn hans fleiri. Eru þarna dagbækur hans frá unglingsárum til æfiloka, víða ýtarlegar um daglega viðburði og samtímamálefni, talsvert safn sendibréfa, kveðlingar frá ýmsum tímum, auk margs annars. Þorfinnur Kristjánsson, ritstjóri í Kaupmannahöfn, sem nú er látinn, hafði gefið safninu bréf sín, en hann átti bréfaskipti við fjölda manna, einkum eftir að hann fluttist til Kaupmannahafnar. Margt fleira mætti nefna, sem handritasafnið telur sér feng í að hafa eignazt. Hér fara á eftir nöfn þeirra, sem gefið hafa eða afhent handrit á árunum 19571961: Agnar Þórðarson bókavörður, Rvík. Alexander Jóhannesson prófessor, Rvík. Andrés Johnson rakari, Hafnarfirði. Anna Marteinsson bókavörður, Ottawa. Anna Sigurðardóttir frú, Rvík. Árni Bjarnarson bóksali, Akureyri. Arnljótur Jónsson lögfræðingur, Rvík. Asmundur Guðmundsson biskup, Rvík. Axel Thor- steinsson rithöfundur, Rvík. Benjamín Kristjánsson prestur, Syðra-Laugalandi, Eyjafirði. Brynjólfur Magnússon fulltrúi, Rvík. S. O'Duiliarga, dr. phil., Dublin. Einar Guðmundsson frá Hraunum, Rvík. Einar Þórðarson frá Skeljabrekku,