LANDSBÓKASAFNIÖ 19591961 Úr handritasal: Stálskápar á rennibraulum. unum er hægt að loka með einu handtaki, og verða því engin handrit í opnum hillum. Skápa þessa hefir Ofnasmiðjan h.f. í Reykjavík smíðað eftir sænskri fyrirmynd, og eru þeir vandaðir að allri gerð. Hefir forstjóri Ofnasmiðjunnar, Sveinbjörn Jónsson, látið sér annt um, að verkið væri sem bezt af hendi leyst. Hann lét einnig smíða fyrir safnið smekklega gerðar eldtraustar stálhurðir, og eru nú tvöfaldar hurðir í öllum dyrum á salnum. Járnhlerar eru fyrir öllum gluggum. Handritasafn Landsbókasafnsins er nú að fyrirferð um 400 hillumetrar. Stálskáp- arnir munu rúma um 700 hillumetra, svo að hægt verður að geyma þarna til viðbótar gamlar bækur prentaðar eða önnur fágæt rit og verðmæt. Auk stálskápanna er til hliðar í salnum einangraður klefi með allmiklu hillurúmi og í salnum sjálfum nokkrir opnir skápar til geymslu handbóka. Undir gluggum við norðurhlið er komið fyrir fimm afmörkuðum stúkum eða lesbás- um, og er þetta rúm ætlað starfsmönnum handritasafnsins og öðrum fræðimönnum, sem vinna að staðaldri við rannsóknir handrita og útgáfur og þurfa að hafa fleiri hand- bækur og önnur hjálpargögn við höndina en unnt er að koma fyrir í almennum lestrar- sal. I þessum stúkum eru hentug vinnuborð og nægilegt hillurúm fyrir handbækur. Þar