LANDSBÓKASAFNIÐ 195 91961 H Úr handritasalnum: Lesbásar. eru einnig lestæki fyrir mikrófilmur og sérstakir lampar með stækkunargleri til nota við lestur handrita. Hægt er að koma fyrir í salnum nokkrum lausum borðum ef þurfa þykir. Breytingar þær og umbætur á þessari nýju vistarveru handritasafnsins hafa verið gerðar undir umsjón húsameistara ríkisins, Harðar Bjarnasonar, og starfsmanna hans, Björns Rögnvaldssonar og Gunnars Ingibergssonar. Hefir menntamálaráðuneytið sýnt góðan skilning á þessum framkvæmdum og ekkert viljað til spara, svo að sem beztur árangur næðist. Skrásetjari handritasafnsins, Lárus Blöndal bókavörður, mun hafa á hendi umsjón og afgreiðslu handritanna, og er þess vænzt, að þessi bætta aðstaða verði öllum hlut- aðeigendum til gagns og ánægju. Handritasafnið er enn að nokkru leyti óplægður akur. og vantar tilfinnanlega starfskrafta til þess að búa það betur í hendur fræðimönnum en kostur hefir verið á. Til er að vísu prentuð skrá yfir allt safnið. Samdi dr. Páll Egg- ert Olason aðalskrána, en hún kom út á árunum 19181937 í þremur miklum bind- um, samtals 2056 blaðsíður í stóru broti. Það var handritasafninu mikið happ að kostur var Páls Eggerts til þessa verks, því að hann var allra manna kunnugastur safn-