LANDSBOKASAFNIÐ 1959-1961 11 Mikrófilmuvélar Landsbókasajnsins. Filmusafnið Frá því að Árbók var prentuð síðast hafa Landsbókasafninu bor- izt tvær verðmætar filmugjafir. Haustið 1959 afhenti formaður Verzlunarráðs íslands, Gunnar Guðjónsson, að gjöf frá Verzlunarráðinu um eitt hundr- að spólur smámynda (mikrofilmur) af íslenzkum verzlunarbókum, sem geymdar eru í Ríkisskjalasafni Dana. Eru verzlunarbækur þessar frá flestum eða öllum verzlunarstöð- um á Islandi á árunum 17421816. Geyma þær að sjálfsögðu merkar heimildir um ís- lenzka verzlunarsögu frá þessu tímabili og sitthvað fleira. Færir Landsbókasafnið hér með Verzlunarráði Islands kærar þakkir fyrir þessa verðmætu gjöf. Onnur mikil filmugjöf hefir safninu borizt á vegum menntamálaráðuneytisins: Abra- ham Lincoln Papers á 96 spólum, en The Library of Congress í Washington hefir látið gera filmurnar. Fylgir þessu filmusafni vélrituð skrá um efni ritanna, mjög nákvæm og handhæg. Haldið er áfram að filma handrit Landsbókasafnsins og afla mynda af handritum úr öðrum söfnum eftir föngum. Hingað til hefir einkum verið myndað á langfilmur, sem undnar eru upp á spólur. Nú hefir safnið eignazt mikrofilmuvél af hollenzkri gerð, sem