Dr. ÞORKELL JÓHANNESSON HÁSKÓLAREKTOR, FYRR LANDSBÓKAVÖRÐUR, lézt í Landsspítalanum í Reykjavík 31. október 1960, tæpra 65 ára að aldri. Hann var fæddur 6. des. 1895 á Syðra-Fjalli í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu. For- eldrar hans voru Jóhannes Þorkelsson, bóndi og hreppstjóri á Syðra-Fj alli, og kona hans, Svava Jónasdóttir frá Hraunkoti í Aðaldal. Hann útskrifaðist úr gagnfræðaskól- anum á Akureyri vorið 1914, vann síðan um skeið að búi foreldra sinna, en lauk stúd- entsprófi utanskóla við menntaskólann í Reykjavík vorið 1922. Næstu ár stundaði hann nám í norrænudeild háskólans með sögu að sérgrein og lauk þar meistaraprófi vorið 1927. Eftir það gerðist hann skólastjóri Samvinnuskólans og ritstjóri Samvinnunnar um skeið. Hann var skipaður 1. bókavörður við Landsbókasafnið árið 1932 og gegndi því starfi til 1943. Á því ári lét Guðmundur Finnbogason landsbókavörður af embætti, og var Þorkell þá skipaður landsbókavörður. Hann gegndi því starfi aðeins eitt ár, því