VILMUNDUR JONSSON LANDLÆKNIR íslenzkar lyf söluskrár I erindisbréfi landlæknis 19. maí 1760, hins fyrsta viðurkennda lyfsala" á íslandi, eru engin bein fyrirmæli um það, við hverju verði hann skyldi selja lyf sín, en sam- kvæmt óbeinum ákvæðum erindisbréfsins (sbr. 12. og 20. lið) hefur honum samkvæmt tilskipun 4. desember 1672 (18. gr.) borið að fara eftir hinni dönsku lyfsöluskrá. Þegar fjórðungslæknar komu til (1766), hafa þeir að sjálfsögðu verið háðir hinum sömu ákvæðum um lyfjaverð. I erindisbréfi hins fyrsta lyfsala 10. maí 1772 er beinlínis tekið fram, að hann skuli fara eftir hinni dönsku lyfsöluskrá. Arið 1818 var lyfsalanum í Nesi við Seltjörn leyft að selja lyf 10% hærra verði en tiltekið var í dönsku lyfsöluskránni, sbr. konungsúrskurð 19. ágúst 1818 og kansellí- bréf 1. september s. á. Árið 1820 var ákveðið, að allir lyfsalar á Islandi mættu framvegis selja lyf 10% hærra verði en tiltekið var í dönsku lyfsöluskránni, sbr. kansellíbréf 27. maí 1820. Arið 1897 var fyrst lögleidd sérstök lyfsöluskrá fyrir Island, sbr. konungsúrskurð 14. janúar 1897 og auglýsingu nr. 1(A) 15. janúar s. á. Fyrstu sérstöku lyfsöluskrárnar fyrir Island voru samdar af hinu danska heilbrigðisráði og birtar á dönsku. Þeirri meginreglu var fylgt um ákvörðun lyfjaverðs, að það væri 10% hærra en í Danmörku á sama tíma. Eftir að stjórnin fluttist inn í landið, þótti ekki tilhlýðilegt annað en lyfsöluskráin væri samin hér á landi og birt á íslenzku. Lyfsöluskráin frá 1. janúar 1901 með breyt- ingu frá 1. janúar 1904 gilti þó áfram og var reyndar tvívegis breytt síðan á sama hátt og áður (1. apríl 1905 og 1. nóvember 1906), en 21. september 1908 er staðfest hin fyrsta lyfsöluskrá á íslenzku, og hefur útgáfan síðan haldizt í óbreyttu horfi. íslenzkar lyfsöluskrár hafa frá upphafi verið gefnar út sem sérstök rit, en ekki verið birtar í Stjórnartíðindum né Lógbirtingablaði. Hinu sama gegndi lengi vel um breyt- ingar á lyfsöluskránum. Birting fyrstu lyfsöluskrárinnar var auglýst í Stjórnartíðind- um, sbr. auglýsingu nr. 1(A) 15. janúar 1897, en síðan er ekki fróðleik að sækja um þetta efni í hin opinberu lögbirtingarrit, fyrr en 1939, að birtar eru í Stjórnartíðindum þrjár auglýsingar um breytingar á lyfsöluskrám og þær breytingar ekki gefnar út sér- staklega. Var þetta alger nýjung. Aftur voru birtar í Stjórnartíðindum 1955 og ekki öðru vísi tvær auglýsingar um breytingu á lyfjaverði. Loks var ein slík auglvsing birt í Stjórnartíðindum 1960, en þó síðar sérprentuð. Arið 1941 er tekið upp að auglýsa í Stjórnartíðindum birtingu lyfsöluskráa og breytingar á þeim, en mikið vantar á, að það hafi verið gert með fullri reglu, og hefur um þriðjungur birtinganna fallið undan. Lyf-