ISLENZKARLYFSOLUSKRAR 237 söluskrár hafa komið út í Iitlum upplögum, koma fáum í hendur og ganga sér til húðar í höndum þeirra, sem þeirra hafa not. Afgöngum upplaga virðist og hafa verið kastað á glæ. Gloppóttur er sá fróðleikur um lyfsöluskrár, sem sóttur verður í íslenzkar bóka- skrár, og fullyrða má, að hvergi sé til fullkomið safn þeirra. Hér ræðir því um hin fá- gætustu rit, og er það trúlega einhver hin varasamasta bókfræðigrein íslenzk að hafa reiður á lyfsöluskrám með öllum tilheyrandi breytingum, viðaukum og leiðréttingum. Mikið vantar á, að tiltækt safn Landsbókasafns af lyfsöluskrám sé fullkomið, sérstaklega að því er tekur til breytinganna. Þrátt fyrir mikla viðleitni um langan tíma, hefur ekki tekizt enn að ná saman öllum íslenzkum lyfsöluskrám með tilheyrandi breytingum handa bókasafni landlæknisskrifstofunnar, og vantar enn, auk allra skránna, sem birtar voru á dönsku (1,17), þetta í íslenzku útgáfuna: II, 35, 7, 9,11,13,14,16,17,19, 20, 28. Eftirfarandi skrá um íslenzkar lyfsöluskrár er gerð eftir eintökum í Landsbókasafni og í bókasafni landlæknisskrifstofunnar með hliðsjón af plöggum þeirrar skrifstofu, Ríkisprentsmiðjunnar Gutenberg og hlutaðeigandi ráðuneytis, en skjöl þess um þetta efni hafa þó því miður ekki reynzt nema að litlu leyti tiltæk til könnunar. Nokkur fróð- leikur um lyfsöluskrárnar, sem birtar voru á dönsku, hefur verið sóttur til Konungs- bókhlöðu í Kaupmannahöfn, auk þess sem stuðzt hefur verið við danskar og íslenzkar bókaskrár. 011 umgetin eintök hafa verið handleikin, að undanteknum fjórum. Er þess getið neðanmáls, hver þau eintök eru. Þess er vænzt, en engan veginn fullyrt, að lítið vanti á, að skráin sé tæmandi. Henni er látið lokið við árslok 1960. Eftir að sérlyf voru orðin næsta algeng, varð nokkur bið á því, að hin opinbera lyf- söluskrá tæki að ráði til sérlyfja. Lyfsalar tóku sig þá fram um að semja og birta slíka lyfsöluskrá í því skyni að samræma verðlag sitt á þessum lyfjum. Þeirrar lyfsöluskrár er getið í skráarauka. I. Á DÖNSKU 1. [Medicin'al-] Taxt fra l«c Julj 1897. Kbh. 1896 (33 bls.)l 2. F0rste Tillæg til Medicinal-Taxten af l«c Juli 1897. Træder i Kraft 1»= Januar 1899. Kbh. 1898 (8 bls.). 3. Andet Tillæg til Medicinal-Taxten af l"c Juli 1897. Træder i Kraft 1"<= Januar 1900. Kbh. 1899 (4 bls.). 4. [Medicinal-]Taxt fra 1«= Januar 1901. Kbh. 1900 (33 bls.).^ 5. F0rste Tillæg til Medicinal-Taxten af l"c Januar 1901. Træder i Kraft lst= Januar 1904. Kbh. 1903 (6 bls.). 6. Andet Tillæg til Medicinal-Taxten af l"c Januar 1901. Træder i Kraft 1»« April 1905. Kbh. 1905 (4 bls.).3 7. Tredie Tillæg til Medicinal-Taxten af lstc Januar 1901. Træder i Kraft 1«= November 1906. Kbh. 1906 (6. bls.). 1 Titilsíða Jyfsöluskrárinnar er svo hljóðandi: Taxt / hvorefter / Apothekerne i Isiand / skulle faiholde de i samme anf0rte Medikamenter / fra 1«= Juli 1897. / Paa Foranstaltning af Ministeriet for Island udarbejdet / af det kongelige Sundheds-Kollegium. / K^benhavn. / Centraltrykkeriet / 1896 /. Brotið er áttblöðungsbrot. - Óséð. 3 Qséð.