Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1964, Blaðsíða 9
LANDSBOKASAFNIÐ 1962 — 1963
9
Leopoldína Eiriks, hefir gefið. Gunnar R. Hansen leikstj óri hefir gefið bréf frá Guð-
mundi Kamban ásamt nokkrum kvæðum eftir hann. Ennfremur hafa gefið sendibréf:
Jón K. Laxdal, Winnipeg, Theodóra Hermann, Winnipeg, og frú Lára Arnadóttir,
Reykjavík. Þá hefir Soffanias Þorkelsson einnig aukið við bréfagjöf sína, sem frá var
skýrt í síðustu Árbók.
Auk sendibréfa hafa verið gefin ýms handrit, og ber þar fyrst að nefna merkilegar
dagbækur Magnúsar Kristjánssonar í Ólafsvík. Lúðvík Kristjánsson rithöfundur, sem
þekkti höfund dagbókanna, hefir að beiðni Árbókar skrifað stutta grein um Magnús,
sem birt er hér á eftir. — Þá hafa dætur Sveins kaupmanns Guðmundssonar á Akra-
nesi gefið dagbækur hans. Úr dánarbúi dr. Bjarna Aðalbjarnarsonar hafa systur hans
gefið ýms handrit. Frú Elenor Sveinbjörnsson, ekkja Sveinbjörns Sveinbjörnssonar
tónskálds, sem áður hafði gefið mikið safn nótnahandrita manns síns, ásamt ýmsum
öðrum handritum hans, hefir enn bætt við þá gjöf.
Þá hefir Steindór Steindórsson, menntaskólakennari á Akureyri, gefið vélritað hand-
rit, sem hann nefnir Akureyrarprent, en það er skrá um allt, sem prentað hefir verið
á Akureyri 1852—1951 og höfundi hefir tekizt að grafa upp. Er þetta mikið verk og
kærkomið Landsbókasafni.
Auk þeirra, sem hér hafa verið nefndir, hafa þessir menn og stofnanir gefið handrit
af ýmsu tagi: Björn Sigfússon háskólabókavörður; Búi Þorvaldsson, Reykjavík; Guð-
brandur Magnússon forstjóri, Reykjavik; frú Guðlaug Bjarnadóttir, Reykjavík; frú
Guðrún Scheving Thorsteinsson, Reykjavík; Háskóli íslands; Indriði Indriðason rith.,
Reykjavík; G. S. Johnson, Glenboro, Man.; sr. Jón Guðnason, fyrrv. skjalavörður;
sr. Jósef Jónsson, Setbergi; frú Málfriður Einarsdóttir, Reykjavík; frú María Bjarna-
dóttir, Reykjavík; Steindór Björnsson kennari, Reykjavík; Sveinbjörn Beinteinsson
skáld, Reykjavík; Vilmundur Jónsson, fyrrv. landlæknir, Reykjavík; Þjóðminjasafn
Islands; Þorsteinn M. Jónsson, Reykjavík.
Landsbókasafn þakkar öllum, sem stutt hafa að vexti handritasafnsins, og biður
menn minnast þess, að þar eiga handrit að vera bezt geymd.
Notkun safnsins hefir verið með svipuðum hætti og áður, dag-
legur starfstími óbreyttur og verkaskipting starfsfólks í megin-
atriðum hin sama. Lestrarsalur hefir venjulega verið fullsetinn og útlán í svipuðu
horfi hin síðari ár, en úr þeim dró að sjálfsögðu allmikið þegar hætt var útlánum ís-
lenzkra rita. Vinnuskilyrði bókavarða eru erfið vegna þrengsla og raunar svo, að varla
verður við unað til lengdar.
íslenzk bókaslcrá ^*ns °B drepið var á í síðustu Árbók hefir útkoma íslenzku bóka-
skrárinnar dregizt lengur en ætlað var vegna anna aðalhöfundar,
Péturs Sigurðssonar háskólaritara, við önnur störf. Nú hefir Pétur látið af embætti
sínu við Háskólann til þess að geta sinnt bókaskránni, og er þess að vænta, að útgáfa
fyrri hlutans (til 1844) sé nú skammt undan. Mun þykja mikill fengur í því riti og
margt nýtt koma í ljós í íslenzkri bókfræði, sem áður var ekki nægilega kannað.
Dagleg starfsemi