Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1965, Blaðsíða 91
ÆVIÁGRIP SIGHVATS GRÍMSSONAR
BORGFIRÐINGS
FRAM TIL 27. DES. 1892 EFTIR SJÁLFAN HANN1
Sighvatur Grímsson Borgfirðingur er fæddur á Nýjabæ á Skipaskaga í Borgarfjarð-
arsýslu þann 20. desbr. 1840. Foreldrar hans voru fátæk þurrabúðarhjón, Grímur Ein-
arsson, ættaður úr Borgarhrepp, og Guðrún, dóttir Sighvats bónda í Bóndhól í Borgar-
hrepp, Jónssonar, er dó áttræður á Hávafelli í Dölum, Guðbrandssonar, og Þórunnar
Jónsdóttur Illugasonar. Sú ætt er fjölmenn mjög um Dali og Mýrar og liggur beint til
Gísla lögmanns Þórðarsonar á Innra-Hólmi, til Lofts ríka á Möðruvöllum, til Bjarnar
riddara ríka, til Reyknesinga, til Jóns biskups Arasonar o. fl. o. fl. Þau Sighvatur og
Þórunn áttu fimmtán börn, og er frá þeim komin fjölmenn ættkvísl. Ætt Gríms Einars-
sonar er með öllu ókunnug; faðir hans drukknaði, en Margrét móðir Gríms var systir
Guðlaugar, þriðju konu Ásmundar í Elínarhöfða, sem fjölmenn ætt er frá komin.
Grímur var um tuttugu ár vinnumaður Magnúsar conferenzráðs í Viðey og síðan
vinnumaður Stefáns Gunnlaugsens (síðar landfógeta), er þá bjó í Belgsholti, og fór
þaðan út á Akranes. Voru þau Grímur og Guðrún þá gift orðin, áttu þau saman fimm
börn alls: 1. Einar, fæddur 1830; 2. Guðrún, fædd litlu síðar, dó ógift 1869; 3. Jón
og 4. Margrét, sem dó ung; 5. Sighvatur. Hann ólst upp með foreldrum sínum við fá-
tækt mikla, til þess faðir hans dó 1851, en var síðan með móður sinni, til þess hún dó
á góuþræl 1859, 59 ára gömul. I æsku vandist Sighvatur við að læra bóklestur á prent-
1 Lbs. 3623 8vo. Stafsetningu höfundar er hér að nokkru haldið. — Sighvatur lézt 14. jan. 1930,
89 ára gamall. Ilann hafði frá 1906 hlotið árlega dálítinn h'feyri af fé Landsbókasafns gegn því, að
safnið fengi að honum látnum handrit hans. Þau reyndust, þegar til kom, 177 bindi, flest uppskriftir
hans sjálfs. Kveður þar mest að Prestaævum lians í 22 bindum og Daghókum í átta bindum, og sjá-
um vér þau verk á myndinni hér að ofan. — Kristján Magnússon tók þessa mynd og aðrar, sem birt-
ar eru í árbókinni.