LANDSBOKASAFNIÐ 1965 Bókaeign Bókaeign Landsbókasafns var í árslok 1965 samkvæmt aðfanga- og bókagjafir skrá 255.194 bindi prentaðra bóka. Safninu barst sem fyrr að gjöf mikill fjöldi bóka, og skal hér fyrst getið sérstaklega tveggja meiri háttar bókagjafa. Gunnar H. Róbertsson, rithöfundur og leikstjóri, er lézt í Kaupmannahöfn 1. des- ember 1964 á 64. aldursári, arfleiddi Landsbókasafn að handritum sínum og ákveðn- um hluta bóka sinna. Frá handritagjöfinni verður skýrt ögn síðar í þessu yfirliti, en bækur þær, er komu í hlut Landsbókasafns, reyndust alls rúmlega átta hundruð bindi. Var hér um að ræða mikið safn leikrita á ýmsum tungumálum og hvers konar bækur aðrar, er lutu að leiklist; ennfremur fjöldi tónverkabóka og hefta. Gunnar H. Róbertsson hefur með gjöf þessari lagt enn drjúgan skerf til íslenzkrar leikmenningar, því að þess er að vænta, að leiklistarfræðingar vorir og aðrir áhuga- menn um þá grein eigi eftir að heyja sér margs nytsamlegs fróðleiks úr bókum Gunnars. Ferill þessa danska manns, er tók ungur ástfóstri við land vort og þjóð, gerðist síðar íslenzkur ríkisborgari og virkur þátttakandi í menningarlífi Islendinga, ¦ er mjög merkur og lærdómsríkur, og minnist Landsbókasafn Gunnars með mikilli virð- ingu og þökk. Þorleifur Erlendsson kennari frá Jarðlangsstöðum í Mýrasýslu skýrði frá því á árinu. að hann hygðist gefa Landsbókasafni bókasafn sitt. Þorleifur varð níræður 5. marz sl., og gekk hann skömmu síðar frá bókagjöf sinni. í safni hans eru alls um 1000 bindi, að mestu leyti íslenzkar bækur, margt ágætra verka, er Þorleifur hefur safnað smám saman á langri ævi. Meðal bóka Þorleifs eru fáeinar, sem Landsbókasafn átti ekki fyrir, en bækur hans munu, þegar fram í sækir, einkum koma í góðar þarfir sem varaeintök. Landsbókasafn metur bókagjöf Þorleifs Erlendssonar mjög mikils og þann góða hug, sem henni fylgir.