8 LANDSBÓKASAFN1Ð1965 Handritadeild Af verkefnum, sem unnið var að í handritadeild safnsins, skal að þessu sinni einkum nefna Skrá um aldur handrita í Lands- bókasafni Islands, er þeir Lárus H. Blöndal og Grímur M. Helgason sömdu. Skráin tekur til handrita frá elztu tíð til 1800, 3582 handrita alls. Skrá þessi verður síðar væntanlega birt eða a. m. k. skýrt frá helztu niðurstöðum hennar. Landsbókasafn átti í árslok 1965 alls 11832 handritabindi, og höfðu safninu bætzt á árinu 136 bindi. Fáein handrit voru keypt, en miklu fleiri gefin, og skal nú getið nokkurra: Menntamálaráðuneytið ákvað á árinu að festa kaup á öllum handritum Björgvins Guðmundssonar tónskálds og fela Landsbókasafni varðveizlu þeirra. Frú Hólmfríður Guðmundsson, ekkja Björgvins, afhenti síðan handritin 23. júní. Frá þessum góða feng er nánara skýrt síðar í Arbókinni í skrá um handrit Björgvins Guðmundssonar og grein um hann eftir Jón Þórarinsson tónskáld. Sr. Benjamín Kristjánsson gaf m. a. sagnaþætti ýmsa eftir Gísla Konráðsson og kvæði eftir sr. Friðrik Friðriksson, en hann hafði eignazt þetta hvort tveggja á ferð- um sínum um Islendingabyggðir vestan hafs. Sr. Benjamín færði safninu jafnframt frá frú Steinunni Inge í Foam Lake, Saskatchewan, 41 bréf Stephans G. Stephans- sonar til Jakobs J. Norman í Wynyard, bróður Steinunnar, auk tveggja minjagripa úr eigu Jakobs. Davíð Björnsson, bóksali í Winnipeg, hefur á þessu og fyrra ári enn sent Lands- bókasafni handrit í safn sitt til viðbótar þeim, er áður voru komin. Jóhann Gunnar Olafsson, bæjarfógeti á Isafirði, gaf Rímur af Þorsteini Aust- fyrðing kveðnar af R. Magnússyni árið 1883 Kyrkjubóli Laugadal". Frú Ragnhildur Líndal Wiese gaf Rímur af Þjalar-Jóni eftir föðurafa sinn, Benedikt Einarsson í Hnausakoti, og með hendi hans. Gjöf þessari fylgdu og fáein gögn föður hennar, Hjartar Líndals, hreppstjóra að Efra-Núpi í Miðfirði. Frú Anna Eiríkss gaf bréfasafn Halldórs Daníelssonar hæstaréttardómara, ennfrem- ur sendibréf til Halldórs Kr. Friðrikssonar yfirkennara. Sitthvað fleira fylgdi gjöf hennar, svo sem Póesíbók fröken Thoru Friðriksson og ættjarðarljóð eftir Gest Páls- son með hendi hans sjálfs, áður óbirt, að því er ætla má. Haraldur Sigurðsson bókavörður gaf tvö bréf frá Steini Steinarr til gefanda. I dánargjöf Gunnars H. Róbertssonar, er áður getur, var mikill fjöldi handrita. Kveður þar mest að leikritum, er Gunnar hafði ýmist frumsamið, þýtt eða hann unnið úr kunnum skáldverkum. Að auki eru nokkur kvikmyndahandrit, ritgerðir, blaðagreinar, fyrirlestrar o. fl. Loks er bréfasafn Gunnars og þar hjá m. a. samningar, er varða leikstjórn hans og höfundarrétt á ritum Jóhanns Sigurjónssonar. Er þess þá og að minnast, að Gunnar hafði áður gefið Landsbókasafni handrit Jóhanns Sigurjónssonar og fleiri góðar gjafir. Frú Heba Geirsdóttir gaf hingað bréf og ýmis önnur gögn úr dánarbúi manns síns, prófessors Alexanders Jóhannessonar.