10 LANDSBOKASAFNIÐ 1965 Sýnt er, að einn maður fái engan veginn annað öllum verkefnum deildarinnar, og þarf hann því fljótlega á nokkurri aðstoð að halda, ef vel á að vera. Aðsókn Hér fer á eftir skýrsla um notkun bóka og handrita, um lesenda- fjölda, útlán og tölu lántakenda. Flokkur 1965 000 ............................. 8.048 bindi 100 ............................. 125 200 ............................. 312 300 ............................. 1.696 400 ............................. 1.285 500 ............................. 670 600 ............................. 473 700 ............................. 213 800 ............................. 2.869 900 ............................. 3.669 Samtals 19.360 bindi Handrit 5.724 Lesendur 13.404 Útlán 826 bindi Lántakendur 171 Nýr bókavörður Ólafur Pálmason mag. art. var um síðustu áramót (1965/66) ráðinn bókavörður. Er ætlunin, að hann vinni að Islenzkri bóka- skrá, veiti Pétri Sigurðssyni lið til að ljúka þeim hluta, er hann hefur haft í takinu lengi, en haldi síðan áfram verki hans. HúsvörSur Haraldur Pétursson lét af húsvarðarstarfi um síðustu áramót, en hann varð sjötugur 15. ágúst 1965. Haraldur hafði verið hús- vörður síðan 1936. Við starfi hans tók Pétur Haraldsson prentari. Landsbókasafn og aðrar stofnanir Safnahússins þakka Haraldi störf hans í þágu staðarins og ánægjuleg kynni á liðnum árum. Endurbætur Ofnasmiðjan kom fyrir í einu kjallaraherbergi safnsins tuttugu stálskápum, sem ætlaðir eru undir geymslueintök. En Landsbóka- safni er skylt, svo sem kunnugt er, að geyma vandlega eitt eintak hverrar íslenzkrar bókar auk notkunareintaks. Hinir nýju skápar bættu í svipinn úr mjög brýnni þörf.