LANDSBÓKASAFNIÐ 19 65 Úr bókbandsstoju Landsbókasajns. Bókbandsstofa safnsins tók á árinu miklum stakkaskiptum. Ný og betri ljós voru sett upp og efnishirzlur allar endurnýjaðar. Landsbókasafn þakkar alþingi það fé, sem það hefur veitt til þessara og annarra endurbóta, og vonar, að unnt verði að halda áfram nauðsynlegustu viðgerð húss og húsmuna. Þess skal að lokum getið með þakklæti, að undirritaður dvaldist tíu daga (24. marz -2. apríl 1965) í London í boði British Council og skoðaði bókasöfn þar í borg og í ná- grenninu og naut hinnar beztu fyrirgreiðslu. íslenzkum bókavörðum er mikil nauðsyn að komast stöku sinnum út fyrir land- steina og kynnast erlendum starfsbræðrum og starfsháttum. Gagnkvæm kynni auð- velda alla samvinnu, en fáar stofnanir eru í eðli sínu alþjóðlegri en bókasöfn. Landsbókasafni, 1. júlí 1966. Finnbogi GuSmundsson