VÖLUSPÁ KONUNGSBÓKAR 87 7) Afdrif trölla í þjóðtrúnni. 8) Viðskipti trölla og manna. Nú datt mér í hug að skoða Völuspá frá þessu sjónarmiði betur en ég hafði áður gert. Þarf engan að undra, þótt hún stæðist gagnrýni. Efnisskipun öll er meistaraverk. Efnið er, eins og allir vita, saga heimsins, örlög guða og manna. Þessa löngu sögu segir skáldið í liðlega sextugri drápu. Hann þjappar heimssögunni í kjarna, eins konar hlekki, sem mynda órofna festi. Sýnt er, að skáldið hefur hugsað sér fyrir fram að xjalla um hvert atriði í tveim vísum, nema efni heimtaði annað. Þetta sést á því, að efnislega skiptist Völuspá að meiri hluta í vísnatvenndir. Og þar sem út af bregður, er greinileg tilhneiging til tvennda innan stærri efnisheilda. Eftir efni má skipa vísum Völuspár í 14 tvenndir ................................ 28 vísur 4 þrenningar .............................. 12 2 ferundir ................................ 8 1 áttund.................................. 8 3 stakar vísur............................. 3 og þriðja stef endurtekið.................. 2 24 aðalatriði 61 visa í öllum efnisheildum, sem eru stærri en tvær vísur, eru innbyrðis eða má greina vísnatvenndir. Þess ber þó að gæta, að vísur kvæðisins eru ekki allar jafnlangar. Sautján þeirra eru óreglulegar að lengd. Hin stytzta er 4 vísuorð, en hin lengsta 14 vísuorð. Efni bendir til, að svo hafi verið frá upphafi. Mun ég nú leyfa mér að birta hér efnisyfirlit Völuspár, eins og það kemur mér fyrir sjónir, þótt ég rökstyðji það ekki fyrr en á eftir. Miðað er við texta Konungs- bókar Sæmundar-Eddu. í þeirri bók er Völuspá 516 vísuorð, sem jafngilda 64 vísum jafnlöngum og hálfri betur. EFNISSKIPUN VÖLUSPÁR I 1) 1 - 2: Inngangur, ávarp og greinargerð. 2) 3-4: Sköpun jarðar. 3) 5 - 6: Ganga himintungla. 4) 7-8: GuUöld ása. 5) 9-16: Dvergaþáltur, sköpun dverga (9-10), vinnusveit dverga (11-12), hersveit dverga (13-16). 6) 17-18: Sköpun mannsins. 7) 19-20: Heimsmyndin. 8) 21-22: Freistari ása. 9) 23-24: Vanastyrjöldin.