VÖLUSPÁKONUNGSBOKAR 105 Nú eru talðar Ngnnur Herjans. Um leið og þessi fleygur bregður þulublæ yfir valkyrjuheitin og fjölgar þeim í vitundinni, minnir hann á önnur orð: Nú hefi ek dverga rétt of talða (12. v.). Ekki sakar samanburður: Valkyrjuheitin eru sex, og í Völuspá eru sex tugir vísna fullir. En nákvæmnin er ekki söm, enda segir talðar ann- ars vegar, en rétt of talða hins vegar. Npnnur Herjans. Eflaust er með þessum hætti vikið að Baldri. Orlög hans eru á næsta leiti. 12. atriði, 31.-33. vísa: DAUÐIBALDURS 31. Ek sá Baldri, blóðgum tívur, Oðins barni, 0rlog folgin. Stóð of vaxinn, vqHu hæri, mjór ok mjok fagr mistilteinn. 32a. Varð af þeim meiði, es mær sýndisk, harmflaug hættlig, Hgðr nam skjóta, 33. Baldrs bróðir vas of borinn snimma, sá nam Óðins sonr einnættr vega, þó hann æva hendr né hpfuð kembði, áðr á bál of bar Baldrs andskota, 32b. en Frigg of grét í Fensglum, vóð Valhallar. Vituð ér enn eða hvat? vgllu hri (31. v.). Sagnorðið hra getur þýtt s. s. afhra: svipta hári (Sbr. hýða = afhýða, hgfða = afhgfða, lima = aflima.). Orðasambandið að hra tún þýðir að slá snöggt gras, einnig að hreinsa af túni. Menn hri vgllu: uppræti illgresi, þ. e. bölvaður sé mistilteinn.