114 VÖLUSPÁ KON UNGSB OKAR Sérstakrar athygli er vert, að fyrsta vísuorð er hér og í 54. vísu frábrugðið því, sem það er í 42. vísu: Geyr Garmr mjgk (42. v.) Geyr nú Garmr mjgk (45. og 54. v.). Án nú verður hrynjandi vísuorðsins önnur en ella og áherzluþungi meiri á hundgánni (Sbr. hanagalið, 40.-41. v.). Tel ég það með ráðum gert. Með nú er hins vegar lögð áherzla á tímann, þegar Garmur tók að gelta, þ. e. þegar hann varð þess áskynja, sem lýst er í næstu vísum. 18. atriði, 46.-49. vísa: SÓKN JÖTNA Hrímþursar og bergrisar (46. og 47. vj, húsþing ása og ráSleysi dverga (48. v.J, Surtur (49. vj. 46. Hrymr ekr austan, 47. Kjóll ferr austan, hefisk lind fyrir. koma munu múspells Snýsk jprmungandr of lgg lýðir, í JQtunmóði. en Loki stýrir. Ormr knýr unnir, Fara fífls megir en ari hlakkar, með freka allir. slítr nái neffglr. Þeim es bróðir Naglfar losnar. býleifts í for. Tekið er fram sérstaklega, að Hrymr (46. v.) muni ekki berjast berskjaldaður. Hann er líka gamall, svo sem nafnið bendir til, og ekr austan. Ef til vill er skýr- ingin sú, að jprmungandr snýsk í jptunmóði og veldur ógurlegu hafróti. Ormr knýr unnir, svo að ari hlakkar og slítr nái nejfglr. Þegar Miðgarðsormur brýzt á land, verða svo mikil flóð, að menn drukkna unnvörpum og verða síðan neffölum ern- inum að bráð. Þ á losnar Naglfar. Oneitanlega hafa menn misskilið orðið múspell (47. v.) þegar að fornu. En það er ekkert sérstakt, og þurfti ekki útlent orð til. Menn standa enn ráðþrota yfir fjölda orða alíslenzkra í fornum kvæðum og hafa þó ólíkt betri aðstöðu til dóma en fornmenn. En sú staðreynd sannar engan veginn, að höfundur Völuspár hafi farið rangt með umrætl tökuorð. Eg hygg, að hann hafi skilið það rétt og múspells lýðir þýði s. s. lýðir, er valda heimsendi" (S. N.). býleifts bróðir. býr: bær eða byggð, leiftr: hvalur; hvalur byggða eða landhvalur": jötunn (Sbr. gljúfrskeljungr, Ggnæv. 1, stophnísa, Þdr. 9, hraunhvalr, Hym. 36.), bróðir jötuns: Loki (Sbr. fífls megir.J. Kjóll ferr austan, en Loki stýrir. Áhöfn Naglfars er einvalalið, múspells lýðir". Fara fífls megir með freka allir: Hrymur, Loki og lið þeirra allt, svo og Miðgarðsorm- ur, sameinast undir forystu Fenrisúlfs. Eftir það er Loki förunautur sonar síns. 48. Hvat es með Qsum? Hvat es með plfum?