124 VÖLUSPÁ KONUNGSBOKAR Eftir vanastyrjöldina hverfa vanir af sjónarsviðinu nema þeir, sem æsir taka upp i sinn hóp (Sbr. Goðafr. 01. Briem, 12. gr.). Fyrir ragnarök skyggnist höfundur Völu- spár inn í hvern heim og lýsir ástandi og viðbrögðum manna og vætta. Allir farast í ragnarökum. Sólin sortnar, stjörnur hverfa, en tunglið var áður tröllum gefið. Sjálf sekkur jörðin alelda í djúpið. Vafþrúðnismál segja aðra sögu. Mannkynið ferst í fimbulvetri nema karl og kona, sem auka kyn sitt eftir ragnarök. Æsir falla og brenna í Surtarloga nema fulltrúar yngri kynslóðarinnar, sem taka við hlutverki forfeðra sinna. Jörðin ferst ekki. I Völuspá rís jörð úr sæ öðru sinni. Þeir æsir, sem þolað höfðu bana eða píslir sak- lausir, og grandvarir menn rísa upp og byrja nýtt líf (Skýr. M. F.). Höfundur Völuspár er alinn upp í heiðnum sið, en kynnist síðar kristnum dómi (Sbr. Vsp. Nord., 63.-64. og 120.-123. bls.). Skáldið ann þó ásum einum, en getur ekki treyst þeim. Þess vegna skírir hann þá í eldi og mennina með. Æsir blótuðu fyrir ragnarök, og þeir blóta eftir ragnarök. I trúarkerfi Völuspár eru örlögin æðstu máttarvöld. HELZTU HEIMILDARRIT Codex Regius of the Elder Edda, with an introduction by Andreas Heusler. Copenhagen 1937. Smundar Edda hins fróða, udgiven af Sophus Bugge. Christiania 1867. Den norsk-islandske Skjaldedigtning, ved Finnur Jónsson. K0benhavn og Kristiania 1912-1915. Edda Snorra Sturlusonar. Búið hefur til prentunar Magnús Finnbogason. Reykjavík 1952. Sigurður Nordal: Völuspá. Fylgir Árbók Háskóla íslands. Reykjavík 1923. Olafur Briem: Norrn goðajrði. Reykjavík 1940. Rudolf Meissner: Die Kenningar der Skalden. Bonn und Leipzig 1921. Finnur Jónsson: Lexicon poeticum. K^benhavn 1913-1916. Johan Fritzner: Ordbog over det gamle norske Sprog. Kristiania 1886-1896. Richard Cleasby and Gudbrand Vigfusson: An Icelandic-English Dictionary. Oxford 1869-1874. Björn Halldórsson: Lexicon islandico-latino-danicum. Havniæ 1814. Sigfús Blöndal: Islensk-dönsk orðabók. Reykjavík 1920-1924. Árni Böðvarsson: Islenzk orðabók. Reykjavík 1963. Hjalmar Falk und Alf Torp: Norwegisch-Danisches etymologisches Wörterbuch. Heidelberg 1910- 1911. Alexander Jóhannesson: lslándisches etymologisches Wörterbuch. Bern 1956. Jan de Vries: Altnordisches etymologisches Worterbuch. Leiden 1962.