134 BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON TONSKALD Lbs. 731, fol. B. G.: SKRÚÐSBÓNDINN. Tónverk við samnefndan sjónleik eftir sama höfund. Samið á ýmsum tímum og hreinskrifað til fullnustu 1954. Handr. búið til prentunar. Utsetningin er gerð fyrir píanó (og orgel) og söng. I athugasemd aftan á titilblaði er gerð grein fyrir verkinu og hvenær einstakir þættir þess eru samdir. Nótna- handr. er 68 bls. Lögin eru alls 25 að tölu, þar í nokkur gamalkunn sálmalög. Lbs. 732, fol. B. G.: KÓRVERK OG FLEIRA, kirkjulegs og veraldlegs efnis. Handr. búið til prentunar. Efninu er skipt í tvo flokka, kirkjutónlist og veraldlega tónlist. I fyrri flokknum eru 16 tölusett verk, flest kórar, margir með einsöng, auk þess tveir dúettar og einn terzett. I síðari flokknum eru 5 verk. Efnisskrá fylgir. Nótnahandritið er alls 166+79 bls. Lbs. 733, fol. B. G.: HLJÓÐFÆRALÖG ÝMISLEG, kirkjuleg og veraldleg, fyrir píanó og orgel. Handr. búið til prentunar. Efnisskrá fylgir, og eru á henni 23 tölusett verk og 7 ótölusett. Nótna- handr. er 135+25 bls. að viðbættu prentuðu hefti, 11 bls., sem hefir að geyma eitt verkanna. Bls. 37-54 í handr. eru f jölritaðar. Lbs. 734, fol. B. G.: SÖNGVASAFN fyrir sólóraddir. Handr. búið til prentunar. Efnisskrá fylgir. I safninu eru 65 sönglög, nokkur þeirra áður prent- uð. Handr. er alls 207 bls. ' Lbs. 735, fol. B. G.: SMÁLÖG FRÁ ÝMSUM TÍMUM. Handr. búið til prentunar. I handr. eru 70 lög útsett fyrir blandaðan kór, 20 útsett fyrir karlakór og 16 harmóneraðar söngvísur". Handr. er 78+25+16 bls. Lbs. 736, fol. Sálmabókarhandrit. Bundin bók. Ekkert titilblað. Fylgibréf" fremst í bókinni er dags. á síðasta vetrardag (og sum- ardaginn fyrsta) 1954. A eftir því fer Háttatal" og skrá um lagboða. I bókarlok er eftirmáli og skýringar, svo og hbfundatal og heimildaskrá. Bókin er alls XIX+313 bls. (bls. 299-304 tölu- settar, en annars óskrifaðar). Samkv. höfundaskrá eru í bókinni 79 lög eftir Björgvin eða radd- sett af honum, en í eftirmála segir hann þau lög fá í bókinni, sem hann hefir ekki raddsett að einhverju leyti. Alls eru í bókinni 408 lög. Lbs. 737, fol. FRIÐUR Á JÖRÐU. Óratóríó (söngdrápa) eftir B. G., útsett fyrir blandaðar raddir með píanó-undirleik. Söngtextinn er tekinn úr samnefndum Ijóða- flokki eftir Guðmund Guðmundsson. Bókaútgáfan Norðri Akureyri 1944. (Prentað í London). Þetta eintak er nr. 1 af 100 tölusettum eint. þessarar útgáfu og er áritað af höfundi. Lbs. 738, fol. ATHUGASEMDIR og skýringar við aldur og uppruna tónverka minna. B. G. Vélritaður bæklingur, 35 skrifaðar bls. auk titilblaðs. Aftan á titilbl. segist höf. hafa tekið á skrána þau tónverk sín, sem hann hafi haldið til haga og ekki hafi misfarizt á annan hátt", jafnt smærri og stærri verk. Verkunum er raðað eftir aldri, og eru hin fyrstu talin frá árinu 1909, en skráin nær til 1960, og eru tvö lögin frá því ári. Verkin eru tölusett, og ber hið síðasta töluna 547. Yfirlit þetta er mjbg greinagott, mörg laganna tímasett nákvæmlega og nokkur grein gerð fyrir sögu sumra þeirra. Um þau lög, sem hafa verið prentuð, er þess getið, hvar þau hafi birzt.