BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON TONSKÁLD 135 Framanskráð verk eru öll á skrá um handrit Björgvins Guðmundssonar tónskálds, dags. 15. júní 1965, sem ekkja tónskáldsins, frú Hólmfríður Guðmundsson, lét fylgja handritunum, er þau voru afhent Landsbókasafni til varðveizlu. Eru verkin hér talin í sömu röð og á þeirri skrá með töluheitum sínum í handritaskrá Landsbókasafns. Frágangur handritanna af hendi tónskáldsins er með miklum hirðubrag, smátt og stórt flokkað nákvæmlega og raðað skipulega. Verkin komu til safnsins í traustlega umbúnum bögglum (þau, sem ekki eru í bundnum bókum), hver flokkur fyrir sig í böggli, svo sem skráin ber með sér. Á hvern böggul var letrað með hendi höfundar: Búið til prentunar". Mestur hluti handritanna er skrifaður á sérstakan nótnapappír í folíó-stærð, lausa einblöðunga með nótnastrengjum aðeins öðrum megin. Sums staðar er skotið inn fjölrituðum eða prentuðum blöðum, þegar um er að ræða lög, sem áður hafa birzt prentuð eða fjölrituð. Er þess jafnan getið í skránni. Að öðru leyti eru handritin með hendi tónskáldsins (svo og meginið af fjölrituðu nótunum), en söng- textar yfirleitt vélritaðir. I safn þetta vantar þau verk Björgvins, sem áður hafa birzt í safnheftum hans, öðr- um en Tónhendum (Sextíu og sex einsöngslög, Áttatíu og átta kórlög, Hljómblik).