UM HANDRIT ÞORSTEINS ERLINGSSONAR 141 Reykjavík 1907 undir heitinu Islenzkar sögur og sagnir. Þjóðsögur hans er einnig að finna í Þjóðsögum Ólafs Davíðssonar, Huld, Bjarka og Arnfirðingi. Þessu safnaði Freysteinn Gunnarsson saman á eina bók að undirlagi ekkju Þorsteins, Guðrúnar J. Erlings, en bætti auk þess við nokkrum sögnum, sem var að finna í þjóðsagnasafninu og ekki höfðu komizt á prent. Kom sú bók út í Reykjavík árið 1954 undir heitinu Þjóð- sögur Þorsteins Erlingssonar. Gerir Freysteinn í formála nokkra grein fyrir handrit- unum, bls. 5, og segir m. a.: Margt er þó í handritum þessum, sem ekki þótti tiltæki- legt, meðal annars nokkur brot með hendi Þorsteins sj álfs, sumt minnisdrög að sögum eða ekki heilar sögur. Þá er þar ýmislegt, sem honum hefur verið sent, en ekki á heima í þessari bók, svo sem alþýðlegir kviðlingar o. fl. Ég hygg, að varla verði gengið nær þessu safni en gert var." I áðurnefndri útgáfu Freysteins eru þó ekki Sagnir Jakobs gamla, enda hafa þær nokkra sérstöðu, eins og Freysteinn tekur fram. En þær höfðu verið gefnar út í Reykjavík 1933. I formála fyrir útgáfunni segir Guðmundur G. Hagalín, að Þorsteinn hafi skrifað þær upp á árunum 1907-1912 og aðeins sé til af þeim blýantshandrit. Það hlýtur að vera sama blýantshandritið og safnið hefir nú eignazt, bláar, mjóar ræmur (Lbs. 4177, 4to). Guðmundur segir í formálanum, að telja megi víst, að Þor- steinn hafi ætlað að hreinskrifa þessar sögur og breyta e. t. v. einhverju; síðan kveður hann svo að orði, bls. 5: En rjettast þótti að láta sögurnar koma fyrir almennings- sjónir eins og þær komu frá þeim Jakobi og Þorsteini. Þá þótti og rjett, að fella ekki burt þær fáu sagnir, sem prentaðar hafa verið annarsstaðar eftir öðrum heimildar- mönnum." Á þessum bláu ræmum eru þó margar sögur, sem birtust ekki í útgáfu Guð- mundar. Þær eru þessar: 1. Sagan af Þorgrímunum, ræma 26-28. 2. Sagan af Hjalta Þorgeirssyni, r. 43-45. 3. Viðskipti séra Friðriks Eggertssonar, þá í Búðardal, og Bergs sterka, r. 45-47. 4. Viðureign Ballæringa, r. 47-51. 5. Bjarni Kolbeinsson og vofan, r. 53-54. 6. Gísli í Bæ á Selströnd, r. 58-59. 7. Bíldudalssauðirnir, r. 82-83. 8. Jafningjasaga, r. 86-87. 9. Sauðlauksdalsdraugurinn, r. 87-92. 10. Gullarfurinn, r. 96-98. 11. Arni Böðvarsson og Gunnarsstaðaþjófarnir, r. 113-114. 12. Útilegumaðurinn síðasti, r. 114-115. 13. Einkennileg vísa, r. 120. 14. Skúli á Kvennabrekku, r. 124-126. 15. Selurinn, sem skipti um ham, r. 129-131. 16. Af Bjarna og Ólafi, r. 131-133. 17. Markús Snæbjörnsson á Gesteyri, r. 141-146. 18. Veinið í Hagakirkju, r. 146-147.