Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1966, Blaðsíða 146
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
NOKKURAR SÖGUR ... í HJÁYERKUM
UPPSKRIFAÐAR
Meðal þeirra handrita, sem
Landsbókasafn eignaðist árið
1965, voru tvö stór bindi íslend-
inga sagna og þátta, er bræður
tveir á Fellsströnd vestur skrifuðu
á seinni hluta 19. aldar. A titilsíðu
eldra bindisins (að því er virðist),
sem var allilla farin og frú Vigdís
Björnsdóttir hefur nú bresst við,
síendur þetta (sjá mynd):
Nokkurar / sögur ok þættir / af
/ Fornaldar-/mönnum / Islend-
ing- / a, / I hjáverkum uppskrif-
adar frá vordögum / 1871 til vor-
daga 1873 / af / Guðlaugi Magn-
ússyni / vinnumanni á Hafursstöð-
um / á Fellsströnd.
Guðmundur Magnússon, bróðir
Guðlaugs, er ritað hefur unirætt
bindi upp þaðan, sem Guðlaugur
hætti í 58. kap. Egils sögu (neðst
á 584. bls.), hefur seinna bætt
nafni sínu á titilsíðuna og breytt
henni til samræmis við það, svo að
niðurlag hennar varð: (af Guð-
laugi Magnússyni) og/Guðmundi
Magnussyni / vinnumönnum á Hafursstöðum / á Fellsströnd og Breiðabólstað / á
Fellströnd.
í bindinu eru alls 762 blaðsíður í stóru broti (32,7x20,8 cm), og hefur Guðmundur
lokið því 20. marz 1875.
Þessar sögur og þættir eru í bindinu: Njáls saga og sona hans, Svarfdæla, Valla-
Ljóts saga, Víga-Glúms saga, Þorvalds þáttur tasalda, Reykdæla saga, Þorsteins þáttur
0£x>fU<tirai*
Mmw
<p
tthwmm
^ UYvk>'t'ó«v fu. vnV,;.,unl
tS'Ji UiwSuuu S.ST3
íluvlaufii Akaunntvyni w
> ""WWM/Mf/W.--
..