NOKKURAR SÖGUR ... í HJÁVERKUM UPPSKRIFAÐAR 147 j£$B$g&$& ¦ stangarhöggs, Brandkrossa þáttur, Droplaugar sona saga, Egils saga Skalla-Grímsson- ar, Gunnlaugs saga ormstungu og Skáld-Hrafns, Þáttur af Stúfi skáldi, Þorsteins þáttur Síðu-Hallssonar, Þorsteins þáttur tj aldstæðings, Egils þáttur Síðu-Hallssonar. Guðlaugur er betri skrifari þeirra bræðra. Hann hefur mikið skraut við upphaf sagna og þátta, og stundum kapítula, og hann hefur teiknað margar myndir í litum og lífgað með þeim upp á sögurnar. Hann gerir sér, sem vonlegt er, ekki grein fyrir húsakosti og klæðaburði fornmanna, setur því burstir á bæ Njáls og klæðir þá Gizur hvíta og Hjalta Skeggjason í heldri manna búning samtíðar sinnar. Seinna bindið er í svipuðu broti (33.3x20.5 cm), 648 blaðsíður, og hefur Guðmund- ur Magnússon skrifað það allt að undantekinni Flóamanna sögu og Vatnsdæla sögu, 585.-648. bls., en þær eru með hendi Guðlaugs. Hefur Guðmundur sennilega látið binda þær með þessu bindi til að jafna milli bindanna. Guðmundur kallar þetta bindi að vísu No. 1, en í því þarf þó ekki að felast, að það sé eldra, heldur var eins eðlilegt, að hann kallaði svo það bindi, sem hann átti bróður- partinn í, þegar hann síðar varð einn eigandi beggja bindanna. Þess er og að geta, að bindi hans hefst á Landnámu, og kann það jafnframt að valda nokkru um tölusetningu hans. í bindi þessu eru auk þeirra sagna, er þegar hefur verið getið, þessar sögur og þættir: Ölkofra þáttur, Bandamanna saga, Bárðar saga Snæfellsáss, Gests saga Bárð- arsonar, Gunnars þáttur Þiðrandabana, Finnboga saga ramma, Grautar-Halla þáttur, Harðar saga og Hólmverja, Þorgríms saga prúða, Kjalnesinga saga, Jökuls þáttur Búa- sonar, Lj ósvetningasaga, Víga-Styrs saga, Heiðarvíga saga, Þórarins þáttur Nefjólfs-