152 NOKKURAR SÖGUR ... í HJÁVERKUM UPPSKRIFAÐAR ast bræðranna frá Arnarbæli á Fellsströnd, er sátu við það rúmlega tvítugir í öllum tómstundum sínum að skrifa upp fornar sögur þjóðarinnar. Og vér getum spurt, hvort einhverjir viti dæmi þess með öðrum þjóðum, að vinnumenn hafi fengizt við þess háttar störf í hjáverkum sínum. Þótt þessi iðja þeirra bræðra og annarra þeirra líka sé ein sér harla merkileg, er þó hitt fyrir mestu, hvern þrótt og metnað þeir sóttu í hinar fornu bókmenntir. Nægir um það að vitna til ummæla Guðlaugs Magnússonar um þær og hvatningarorð hans til landa sinna vestra í grein þeirri um sögu Islendinga í Ameríku, er hér fer á eftir.