Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Blaðsíða 5
LANDSBÓKASAFNIÐ 1969
BÓKAKOSTUR OG Bókakostur Landsbókasafns var í árslok 1969 samkvæmt að-
BÓKAGJAFIR fangaskrá 278.542 bindi prenlaðra bóka og hafði vaxið á árinu
um 6.168 bindi.
Mikill fjöldi binda var gefinn safninu eða fenginn í bókaskiptum.
Hér verður getið sérstaklega fáeinna bókagjafa:
Dr. Finnur Guðmundsson gaf fjölda sérprentana, greina eftir sjálfan sig, föður
sinn, Guðmund Bárðarson jarðfræðing, og fleiri höfunda.
Steindór Steindórsson skólameistari á Akureyri gaf margvíslegar sérprentanir og
úrtök.
Jóseph S. Jóhannsson Vancouver, sonur Eggerts Jóhannssonar, fyrrum ritstjóra
Heimskringlu og Aldarinnar, gaf nokkrar gamlar íslenzkar bækur úr fórum föður
síns til minningar um hann.
Sigurður Nelsson, Akra, Norður-Dakota, gaf Landsbókasafni nokkrar 19. aldar
bækur um hendur Samúels Tcrfasonar, Reykjavík.
British Museum hefur á undanförnum árum sent Landsbókasafni að gjöf viðauka
þann við allsherj arskrá þá í 263 bindum um prentaðar bækur í British Museum fram
til ársins 1955, sem keypt var handa Landsbókasafni á sínum tíma. Viðaukinn tekur
yfir tíu ár, 1956-1965, og er 50 bindi. Seinustu bindin bárust á árinu 1969, og er
þetta hin bezta gjöf.
Vísindafélagið finnska (Academia scientiarum Fennica) sendi Landsbókasafni
mikla og góða bókagjöf fyrir atbeina Jorma Vallinkoski háskólabókavarðar í Hels-
ingfors.
Bókasafn Cornell-háskóla í íþöku gaf Landsbókasafni míkrofilmu, sem á voru tíu
íslenzk rit, sem vér áttum ekki í voru safni, en til voru í Fiske-safninu vestra. Gjöfinni
fylgdi vinsamlegt bréf, dagsett 4. nóvember 1969, frá G. F. Shepherd Jr., öðrum
tveggja forstöðumanna háskólabókasafnsins, en þar var þess getið, að safnið vildi
með gjöf þessari minnast 150 ára afmælis Landsbókasafns á fyrra ári.
Nú verða taldir aðrir gefendur bóka, einstaklingar og stofnanir, og fara fyrst nöfn
íslenzkra gefenda:
Agnar ÞórSarson bókavörður, Rvk., - Almenna bókafélagið, Rvk., - Ásgeir Magnússon ræðis-
maður, Rvk. - Dr. Áskell og dr. Doris Löve, Boulder, Colorado. - Phyllis og Benedikt S. Benedikz