Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1972, Blaðsíða 143
SNÆBJORN JONSSON
CLARENDON PRESS OG
KENNETH SISAM
Clarendon Press, eða Oxford University Press, er ekki félag til bókaútgáfu, eins
og margur mun þó ætla, heldur er þetta blátt áfram ein deild Oxfordháskóla, og
varaforseti hans er ávallt ex ojficio forseti hennar. Stjórn hennar er annars skipuð
nítján manna ráSi, sem viS getum líklega nefnt framkvæmdaráS, þó aS stjórnar-
ráS væri heppilegra orS, ef ekki væri fyrir þaS, aS málvenjan einskorSar þaS
viS ríkisstjórnina. Og málvenju ber ávallt aS virSa (en málleysur aS sjálfsögSu
ekki). I þetta ráS komast aS jafnaSi ekki aSrir en úrvalsmenn, og vitaskuld
sitja þeir í ráSinu sem fulltrúar eSa umboSsmenn, enda svo nefndir (Delegates).
I þessu framkvæmdaráSi hafa löngum setiS margir frábærir menn og nafn-
togaSir. Eigi aS síSur er þaS svo, aS vald sitt leggja þeir aS miklu leyti í hend-
ur einum manni, sem þeir velja utan síns hóps, og nefnist hann framkvæmda-
stjóri, eSa á ensku Secretary to the Delegates. OrSiS secretary sjáum viS lang-
oftast þýtt meS orSinu ,ritari‘, og oft er sú þýSing rétt, en iSulega væri þaS al-
rangt aS þýSa þannig. Enska orSiS hefir margfalt víStækari merkingu en hiS ís-
lenzka og táknar þrásinnis mann meS miklu valdi, t. d. valdamestu mennina í ríkis-
stjórn. Þegar nefndur er Secretary í sambandi viS Clarendon Press, er þaS í raun-
inni valdamesti maSur stofnunarinnar, sem um er aS ræSa. En stofnun þessi er ekki
aSeins sú elzta sinnar tegundar í heimi öllmn, heldur og hin miklu stærsta aS því er
alfræSibækur segja.
Geta má nærri, aS maSur muni ekki valinn af handahófi í þessa stöSu. Og
aldrei er embættiS auglýst til umsóknar, þegar mannaskipti verSa. Fulltrúarnir
hafa hinn háttinn á, aS þeir líta rækilega í kringum sig og fala svo þann mann í
embættiS, er þeim virSist sem mesta hafi hæfileikana til aS skipa vel hiS vanda-
sama og ábyrgSarmikla sæti. Ekki er þess getiS, aS valiS hafi nokkru sinni mis-
tekizt eSa miSlungsmaSur komizt í embættiS. ÞaS hafa ávallt skipaS ágætir menn,
en almennt er taliS, aS þrjá hafi þar boriS hæst: Bartholomew Price (1868-84),
Charles Cannan (1898-1919) og Kenneth Sisam (1925^8). ÞaS er þessi síSast-
greindi, sem viS munum innan skamms gera nokkru nánar aS umtalsefni. En fyrst