Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Blaðsíða 45
JÓN LÆKNIR PÉTURSSON OG LÆKNINGABÓK HANS
45
merktar eru með P. en Landlœknisins með Th (bls. V). Grein 216 er ómerkt,
en af inntakinu sést, að hún er nýsmíð Sveins, því að í henni er vitnað
í skýringargreinar hans og recepta Thorstensens. Pað er því ekki
ástæða til að ætla, að handritið, sem Sveinn fékk, hafi verið
frábrugðið Lbs. 2424 4to, en full ástæða til að athuga, hvaða aðrar
umbætur hafi verið gerðar á því handriti án þess þær væru auð-
kenndar. í handriti: § 180, Blóðsótt, segir um sjúkdóminn: „Þá hann
kémr af Blódsins og Saftanna Spillíngu, grípr hvern afödrum, deydir
suma enn gérir adra dádlausa. Hann gengr hér á Landi opt vid
síáfarsídu, ecki síst á öndverdum Vortíma sem sídastlidid ár 1774.“
En í bókinni segir: „einkum er þad í hallærum og kríngum ellds
uppkomur, tídast vid sjóarsíduna, hvar hann almennt kallast Blód-
kreppa. Þegar hann kémur af blódsins og saftanna spillíngu, er hann
optast næmur, grípur hvern af ödrum, deydir suma en gjorir adra
dádlausa.“ Handritið § 298. Clyster hefur þessa tilvísun: „(a) Ná-
qvæmari Útmálun þessa Verkfæris hafa menn í Yfirsetuqvenna
Skólans 12'a Capitula“, Bókin: ,,a) Nákvæmari útmálun þessa
medals, er ad finna í Buchwalds Yfirsetu-qvenna Skóla, 12ta Kap.,
og ecki sídur í Vidbætirnum aptan vid Saxtorphs íslendskudu Yfir-
setu-qvenna frædi afLandph. J. Sveinssyni.“
í bókinni eru alla jafna sett innan sviga latnesk heiti sjúkdóma,
einkenna og lyfja, en svo er eigi í handritinu. Ennfremur eru stundum
gefnar fyllri upplýsingar í bókinni en voru í handritinu (sbr. § 161
(a)), og í sumum tilvikum er langt mál handritsins stytt til muna í
bókinni, án þess að hróflað sé við meiningu höfundar (sbr. § 278, sem
fjallar um blóðtökur).
Þótt Sveinn hafi þannig vikið frá handriti Jóns að bókinni og fært
atburði til líðandi stundar án þess að það komi fram, þá hef ég ekki
rekizt á, að meiningarmuns milli þeirra sé ekki ætíð getið í merktum
athugasemdum. Sveinn hafði lokið þessari endurskoðun 9. sept. 1828,
en þá skrifar hann Halldóri í Nesi „med Jóns k(unningja) lækn(inga)
bóc alfarid“ (ÍB. 4 8vo). Og það er Ijóst, að handrit það, er Sveinn
hafði undir höndum, var efnislega eins og Jón Pétursson hafði gengið
frá því, er hann dvaldist embættislaus fyrir sunnan.