Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 114
114
LANDSBÓKASAFNIÐ 1990
Gefin er út sem kunnugt er samnorræn skrá um erlend tímarit,
NOSP, og er Þorleifur íslenzki fulltrúinn í nefnd þeirri, er umsjón
hefur með því verki.
Meðal sérverkefna Þorleifs í Landsbókasafni er að leita uppi
erlend rit um íslenzk efni og sjá um aðdrætti þeirra. En dregin eru
að á hverju ári nokkur hundruð rit af því tagi.
Halldór Þorsteinsson, er lét af fullu starfi í Landsbókasafni fyrir
nokkrum árum, hefur unnið liálft starf áfram í tímavinnu, séð um
íjárreiður safnsins og eftir því sem tími hefur unnizt til rit
Sameinuðu þjóðanna og nokkurra annarra alþjóðastofnana.
Guðbjörg Benediktsdóttir hefur unnið sem ritari allt frá árinu
1953. Auk vélritunar fyrir embætti landsbókavarðar hefur hún
unnið að efnisskrá íslenzkra blaða og tímarita og þokað því mikla
verkefni þó nokkuð áleiðis. Aður vélritaði hún spjaldskrár safns-
ins bæði um íslenzk rit og erlend, en það verk er nú unnið með
nýjum hætti.
HANDRITADEILD Frá breytingum starfsliðs í deildinni, er
varð við fráfall forstöðumannsins
Gríms M. Helgasonar, er greint í almenna kallanum um starfslið.
Verkefni deildarinnar eru svipuð og verið hefur, öfiun, skráning og
umbúnaður nýrra handrita, en stefnt er að útgáfu fjórða viðaukabindis
handritaskrárinnar.
Sjöfn Kristjánsdóttir kannaði áfram ásigkomulag handrita og
valdi úr þau þeirra, er brýnast var að koma í viðgerð á Viðgerðar-
stofu handrita í Þjóðskjalasafni, er annast sem fyrr viðgerð hand-
rita og skjala beggja safnanna. En stofan er nú í húsnæði Þjóð-
skjalasafns við Laugaveg 162.
Nanna Ólafsdóttir, fyrrum starfsmaður handritadeildar, lét
seint á árinu af ígripavinnu sinni í deildinni. Hún fékkst einkum
við skráningu bréfasafna, svo sem bréfasafns Halldóru Bjarna-
dóttur, sbr. ritgerð Nönnu um Halldóru í Árbók 1988.
Landsbókasafni barst á árinu fjöldi handrita, og verða nú talin
allmörg þeirra.
Arnljótur Björnsson prófessor afhenti gögn, komin úr búi
langafa hans, sr. Arnljóts Ólafssonar, ennfremur gögn tengd
Birni Guðmundssyni kaupmanni á Þórshöfn og Snæbirni syni
Arnljóts.