Vísbending


Vísbending - 14.12.1992, Blaðsíða 1

Vísbending - 14.12.1992, Blaðsíða 1
V Viku ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 14. desember 1992 49. tbl. 10. árg. Hlutfall tekju- skatts hækkað og afsláttur skertur Ríkisstjómin hefur nú lagt fram nýtt skattafrumvaip. Innheimtuhlutfall tekju- skatts í staðgreiðslu hækkar úr 39,85% í 41,35%. Lagður verður 5% skattur á tekjur umfram 2,4 milljónir króna á ári hjáeinstaklingum (200.000 á tnánuði að jafnaði), eða 4,8 milljónir hjá hjónum. Hátekjuskatturinn verður fyrst lagður á 1994, vegna ársins 1993, og hefst fyrirframgreiðsla hans í ágúst næstkomandi. Hækkun tekjuskatts og lækkun barnabóta samkvæmt frum- varpinu eru taldar rýraráðstöfunartekjur heimila um 1,6% að meðaltali. Breytingin kemur ójafnt niður, en skerðingin er mest hjá bamafólki með háar tekjur. Þá minnkar stuðningur ríkisins við þá sem eru að koma sér upp húsnæði: Vaxtabætur eru skertar um 15% frá því sem nú er. Skattaafsláttur vegna hlutabréfakaupa breytist að líkindum lítiðáárinusemeraðlíða. Því má sennilega draga hlutabréfakaup fyrir um 94.000 krónur frá skattskyldum tekjum að þessu sinni. Aftur á móti er ætlunin að skerðji afsláttinn í áföngum á næstu árum. A næsta ári má draga hlutabréfakaup fyrir um 80.000 krónur frá skattskyldum tekjum og fjárhæðin lækkar síðan um 20.000 krónur á ári. Einnigánúaðskerða skattaafslátt vegna innleggs á húsnæðissparnaðarreikninga í áföngum á nokkrum árum. Innstæður reikninganna verða þó áfram bundnar. Breytingar á skatti fyrirtækja Tekjuskattur hlutafélaga lækkar úr 45% í 38% um áramót. Þá verða skatt- frjálsar arðgreiðslur hlutafélaga nú að hámarki 10% í stað 15%. Gerður er munur á skattlagningu sameignarfélaga og hlutafélaga, þannig að skatthlutfall sameignarfélaga verður 41 % á komandi ári (var 45%). I fjárlagafrumvarpi var boðað að skattur hlutafélaga og sameignarfélaga myndi strax lækka í 33%, en nú á að lækka hann í áföngum. Með þessu verður munur á skatt- lagningu einstakra félagaforma minni en ella. I greinargerð með skatta- frumvarpinu segir að nú gefist færi á að endurskoða gildandi lög um þetta efni. Eflaust munu þó einhverjir skipta um rekstrarform til þess að lækka skattana, í stað þess að bíða eftir nýrri löggjöf. Hærri skattur er nú heimtur af hagnaði einstaklingsrekstrar en sameignarfélaga. Af honum þarf að greiða 41,35% almennan tekjuskatt og 5% hátekjuskatt, eins og öðrurn tekjum einstaklinga. Arðgreiðslurhlutafélagaeruskattfrjálsar á meðan þær fara ekki yfir 10%. Onnur rekstrarfonn njóta ekki slíkra fríðinda. A hinn bóginn greiða bæði hlutafélög og viðtakendur skatt af arði sem er umfram 10% af nafnverði hlutafjár. Abyrgð eigenda hlutafélaga er takmörkuð við hlutaféð. Hjá einstaklingsfélögum og sameignar- fyrirtækjum er þessu öðruvísi farið. Ef þau fara á höfuðið má ganga að öðrum eignum eigenda. Þess vegna er sérstak- lega mikilvægt að þessi fyrirtæki séu ekki látin sæta lakari skattakjörum en hlutafélög. Hækkandi tekjuskattur Á rneðan tekjuskattur var greiddur eftiráréð verðbólgamiklu um skattbyrði. I grein Sigurðar Snævars í 11. tölublaði 1991 kom fram að raunhlutfall tekjuskatts var rúm 38% árið 1984, en það lækkaði á næstu árum og varð rúmlega 29% árið 1987. Þegar staðgreiðslukerfi skatta var komið á árið 1988 varskatthlutfallið 35,2%,en síðan hefur það farið hækkandi. Það var tæp 40% urn nokkurra ára skeið, en er nú komið gegnum þann múr. Nú er hlutfallið 41,35%, eins og áður segir, og hefur hækkað um rúm 6% á þeim fimm árum sem liðin eru síðan staðgreiðslu- kerfi skatta var tekið upp. Einnig hefur persónuafsláttur minnkað að raungildi þannig að rnenn greiða nú tekjuskatt af lægri rauntekjum en áður. Áuk þess bætist hátekjuskatturinn nú við. Með því að tekjutengja ýmsar greiðslur úr ríkissjóði hækkar jaðarskattur, með öðrum orðum minnkar hagur fólks af vinnu. Undanfarin árhefurtekjutengdur hluti barnabóta til dæmis verið aukinn. Á myndinni sést hvemig jaðarskattur hjóna með þrjú börn hefur hækkað undanfarin ár. Þegar samanlagðar tekjur hjónanna eru á bilinu 115 þúsund til ríflega 200 þúsund krónur á mánuði er jaðarskatturinn tæp 60%. Það þýðir að af hverri nýrri krónu sem hjónin fá í laun renna tæplega 60 aurar til ríkisins, en þau halda eftir 40 aurum. Annað dænri um tekjutengingu er 6% tekna eru dregin frá vaxtabótum, sem eru undir hámarki. Þá má nefna endurgreiðslur námslána, sem nú geta verið allt að 5% tekna. Háir jaðarskattar draga úr vinnuvilja og hagvexti. Víðast hvar á Vesturlöndum hafa menn áttað sig á þessu. Á undanförnum áratug hefur skattakerfi verið umbylt víða um lönd og hefur eitt meginmarkmiðið verið að lækka jaðarskatta. Islendingar hafa verið á eftir í þessari þróun. Skattar hafa lengst af verið lægri hér en annars staðar og þess vegna hafa menn ekki gefið jaðarsköttum gaum. Nú hafa menn tekið við sér annars staðar og reyna að lækka jaðarskatta, en þeir fara enn hækkandi hér. • Skattamál • Sviss hafnar EES • Alþjóðleg samkeppni

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.