Vísbending


Vísbending - 21.12.1992, Blaðsíða 3

Vísbending - 21.12.1992, Blaðsíða 3
Að vera frjáls- lyndur Dr. Þorvaldur Gylfason Náttúrufræðingar eru yfirleitt umhverfisverndarsinnar. Hvemig ætti annað að vera? Þeim hlýtur að vera sérstaklega umhugað um náttúmna, land og sjó, umhverfi okkar allra. Þess vegna lögðu þeir slund á náttúrufræði í skóla. Þess vegna vinna þeir flestir við náttúrufræðileg viðfangsefni af ýmsu tagi að loknu námi. Það stendur þeim næst að vara almenning og stjómvöld við hvers kyns umhverfisspjöllum, þegar svo ber við, og leggja á ráðin um náttúruvernd til sjós og sveita. Til þess hafa þeir upplag, þjálfun og þekkingu. Náttúra, mengun og markaður Með líku lagi em hagfræðingar yfirleitt frjálslyndir. Hagfræðin sjálf gerir þá flesta frjálslynda, ef þeir voru það ekki fyrir. Með þessu á ég einfaldlega við það, að hagfræðingar em yfirleitt hlynntir markaðslausnum á aðskiljanlegum efnahagsvandamálum, þegar slíkum lausnum verður við komið á annað borð. Þeir telja með öðrum orðum, að ráðstöfun takmarkaðra gæðaþessaheims verði allajafna hagfelldust af sjónarhóli almennings, þegar verð á vörum og þjónustu af flestu eða öllu tagi er ákveðið á ópersónulegum markaði án íhlutunar stjómvalda eða hagsmunasamtaka. Þeir gera sér þó jafnframt grein fyrir því, að stundum getur markaðurinn brugðizt, þannig að afskipti almannavaldsins eru nauðsynleg á afmörkuðum sviðum, eins og til dæmis til að halda uppi lögum og reglu, til að tryggja viðunandi félagslegt öryggi og til að styrkja listir, menntir og vísindi, svo sem líðkast um allan heim. Þessi sameiginlega skoðun hag- fræðinga er reist á fræðilegum rökum og reynslu, sem ná næstum tvö hundruð og tuttugu ár aftur í tímann eða allar götur aftur til Adams Smith, föður hagfræðinnar, sem birti bókinagóðu um Auðlegð þjóðanna árið 1776. Þessi arfleifð mótar sameiginleg viðhorf alls þorra góðra hagfræðinga til efnahagsmála um allan heim, þótt hagfræðinga geti að sjálfsögðu greint á um stjórnmál ekki síður en annað fólk, en það er önnur saga. Illmeðferðalmannafjárogfátæktorka á hagfræðing nokkum veginn eins og umhverfisspjöll og uppblástur orka á náttúrufræðing. Hagfræði kennir mönnum að bera virðingu fyrir verð- mætum, alveg eins og náttúrufræði kennir mönnum að bera virðingu fyrir umhverfinu. Hagfræðingar eru andvígir viðskiptahöftum og skömmtun og alls kyns öðrum spjöllum á gangverki markaðshagkerfisins með sams konar rökum og sama hugarfari og náttúru- fræðingar, sem eru mótfallnir mengun og náttúruskenundum. Fellir hagfræðingur gildisdóm, þegar hann gagnrýnir stjórnvöld fyrir ákvarðanir, sem hann telur bitna á afkomu fólks og fyrirtækja? Fellir náttúrufræðingurgildisdóm,þegarhann Ieggst gegn ráðstöfunum, sem myndu spilla náttúrunni? Fer eðlisfræðingur út fyrir vísindaverksvið sitt, þegar hann varar yfirvöld við afleiðingum kjarnorkusprenginga? Eru fræðimenn farnir að skipla sér af stjómmálum í þessum þrem dæmum? Nei, það þarf ekki endilega að vera. Þeir eru yfirleitt þvert á móti að gegna fræðaskyldum sínum gagnvart almenningi, hver á sínu sviði. Oðru máli gegnir hins vegar um eðlisfræðing, sem leggur á ráðin um efnahagsmál, eða um hagfræðing, sem blandar sér í umræður um atómsprengjur: það eru stjómmál. Almannahagur og hagkvæmni eru ær og kýr hagfræðingsins, alveg eins og óspillt náttúra er takmark náttúru- fræðingsins. Sjónarmið hagfræðingsins og náttúrufræðingsins geta að sönnu stangazt á, eins og til að tnynda þegar hagfræðingurinn mælir með virkjun vatnsfalls með efnahagsrökum, þótt náttúrufræðingurinn leggist gegn virkjuninni af umhverfisástæðum. En efnahags- og umhverfissjónarmið geta líka farið saman. Nú skulum við skoða það betur. ISBENDING hægt að slá tvær flugur í einu höggi: (a) draga úr umferð um lóðina nóg til þess að bætafyrirumhverfisspjöllin,sembúið er að vinna í Vatnsmýrinni og víðar, og (b) afla Háskólanum umtalsverðra tekna. Ekki veitir af. Hundrað krónur á bíl á dag í átta mánuði myndu til dæmis skila Háskólanum um sextán milljónum króna á ári á hvei ja þúsund bfla. Það munar um minna. Til samanburðar kostar kaffibolli 50 krónur á kaffistofunni í Odda. Sumir virðast halda, að hér sé einhver sérstök Chicago-hagfræði á ferðinni. Þegar menn nefna Cþicago til sögunnar í þessu sambandi, eru þeir yfirleitt að reyna að gefa það í skyn, að markaðslausnir á mengunar- vandamálum eigi eitthvað skylt við stjómmálaskoðanir og hugmyndafræði svo nefndra hægri manna á þeim slóðum og annars staðar. Svo er þó alls ekki. Næstum allir hagfræðingar líta stöðumælagjöld (og mengunargjöld og markaðsbúskap yfirleitt) sömu augum — og það gera borgaryfirvöld líka hér heima ekki síður en annars staðar sem betur fer, samanber stöðumæla borgarinnar nokkur hundruð metra frá Háskólanum. Vatnsmýrin er eins og óvernduð fiskimið. Aðgangurað henni erókeypis enn sem komið er. Hver bílstjóri tekur kraðakskostnaðinn, sem hann leggur á aðra, ekki með í reikninginn, þegarhann ákveður að aka í skólann og leggja bílnum sínum í mýrinni. Markaðurinn fær ekki að njóta sín. Með hæfilegu stöðumælagjaldi er ökumanninum hins vegar gert að greiða kostnaðinn, sem hann leggur á aðra. Þess vegna er hagkvæmt—ogjafnframt réttlátt, myndi flestum finnast — að draga úr sókn í bflastæðin með gjaldheimtu. Þá minnkar sóknin í stæðin og umferðin um leið. Og eigandi svæðisins, Háskóli íslands í þessu dæmi, aflar sér tekna á hagkvæman hátt. Höfundur er prófessor við Háskóla Islands ., Gjald fyrir mengun Tökum dæmi. Þegar ég horfi út um gluggann minn í Odda, sé ég Vatnsmýrina, sem var einu sinni nógu falleg til þess að verða Tómasi Guðmundssyni að yrkisefni. Nú hefur Háskólinn lagt stóran skika af mýrinni næst Odda undir tímabundið bílastæði til aðbregðast við umferðaröngþveitinu, sem hefur verið til talsverðra vandræða á Háskólalóðinni undanfarin ár. Mýrin er nú ekki nema svipur hjá sjón. Hagfræðingar kunna einfalda lausn á mengunarvandamálum sem þessum: stöðumælagjald! Með því að leggja til dæmis 100 króna gjald á bíl á dag, væri Ný framfærsluvísitala Framfærsluvísitala hækkaði um hálft prósent í nóvember og er nú 162,2. Bensín og bílar hækkuðu mest í verði en matvörur lækkuðu. Búast má við að áhrif gengisfellingarinnar séu ekki að fullu komin fram og framfærsluvísitala hækki því meira á næstu mánuðum en hún hefur gert að undanförnu. Verðlag hefur nú hækkað um 1,5% á einu ári. Horfur eru á að verðbólga á árinu verði hin minnsta síðan 1971, en þá var verðstöðvun í gildi. g 3

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.