Vísbending - 02.12.1993, Blaðsíða 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
2.
desember
1993
47. tbl. 11. árg.
„Jólaösin" að
hefjast á hluta-
bréfamarkaði
Gengi hlutabréfa hefur farið nokkuð
hækkandi undanfarið enda einungis
tæpur mánuður til stefnu fyrir þá sem ætla
að nýta sér skattafslátt vegna hluta-
bréfakaupa. I ár verður einstaklingum
heimilt að draga frá skattsky ldum tekjum
andvirði hlutabréfakaupa allt að 100
þúsund krónum en hjón mega draga frá
200 þúsund. Skattafslátturinn verður
því á bilinu 41-82þúsund krónur en bréfin
þarf að eiga í a.m.k. 2 ár.
I fyrra nam heildarfjárhæð hlutabréfa-
kaupa sem veitti rétt til endurgreiðslu
ríflega 761 milljón króna. Svo virðist
sem almenningur sé nú fyrr á ferðinni í
hlutabréfakaupum sínum en þá. 1 nóv-
ember 1992 voru alls 79 viðskipti með
hlutabréf skráð í viðskiptakerfi Verð-
bréfaþings Islands, en á mánudaginn 29.
nóvember voru viðskipti í mánuðinum
orðin 365. Vaxtalækkunin sem orðið
hefur frá því ríkisstjómin kynnti aðgerðir
sínarí vaxtamálum skýrir þó að líkindum
eitthvað af þessari aukningu.
Samkvæmt upplýsingum frá ríkis-
skattstjóra höfðu
samtals 98 rekstrar-
félög uppfyllt skil-
yrði embættisins til
endurgreiðslu á
skatti á þessu ári.
Miðað við reynslu
undangenginna ára
munu þó einhver
félög bætast í hópinn
fram að áramótum.
A almennum mark-
aði eru þó aðeins
seld hlutabréf í um
fjórðungi þessara
fyrirtækja.
Mesta
hreyfingin í
Eimskipum
ogFlugleiðum
Tíðust viðskipti hafa átt sér stað með
hlutabréf í Eimskipum og Flugleiðum að
undanförnu eins og sjá má á myndinni.
Frá 1.-29. nóvember höfðu alls 60 við-
skiptafærslur átt sér stað með hlutabréf í
Eimskipum fyrir rúmar 27 milljónir króna
en 50 kaup og sölur í Flugleiðum að
heildarupphæð um 20 milljónir. Tölu-
verð hrey fing hefur einnig verið á bréfum
Skráð hlutabréfaviðskipti á Verðbréfaþingi íslands
Gengi 1.10-29.11 Gengi Breyt- Viðsk. Viðsk. Fjöldi Fjöldi
29.11 31.10 ingar nóv. okt. nóv. okt.
íslandsbanki hf. 0,90 0,87 3% 25.558 7.981 36 15
Eimskipafél.ísl.hf. 4,69 4,10 14% 27.418 5.816 60 18
Flugleiðirhf. 1,25 1,01 24% 20.202 2.344 50 15
Olíufélagiðhf. 5,70 4,90 16% 2.402 20.442 14 14
Sameinaðir verktakar hf. 6,65 6,60 1% 2.005 330 5 1
Skeljungurhf. 4,50 4,25 6% 12.483 212 18 1
Olíuverzlun I slands hf. 2,00 1,85 8% 25.346 7.620 44 8
Útgf. Akureyringa hf. 3,30 3,25 2% 625 1.167 5 7
Grandi hf. 1,98 1,85 7% 22.983 1.522 33 4
Sjóvá-Almennarhf. - 6,00 - - 150 - 1
Hampiðjan hf. 1,40 1,35 4% 833 1.331 5 3
Jarðboranirhf. 1,87 1,87 0% 399 281 2 2
Sfldarvinnslanhf. 3,00 3,00 0% 12.150 3.000 3 1
Sæplast hf. 3,14 2,95 6% 6.191 2.346 21 5
Tollvörugeymslan hf. 1,25 1,15 9% 488 463 4 3
Marel hf. 2,67 2,65 1% 4.322 3.260 20 5
7% 163.405 58.265 320 103
Fjöldi viðskipta nieð hlutabréf á Verðbréfaþingi og
Opna tilboðsniarkaðinum í október og nóvember1
Bmtkipafd. ísL hf.
Higjdðir hf.
aíuvendun íslands hf.
íslanckbanki hf.
G'ancí hf.
Saplasthf.
Mrd hf.
Skeljungjr hf.
Qíufélagjð hf.
Hinpiðjanhf.
Ugf. Akureyringtlif.
Samáa verktakar hf.
Tollvörugjymdan hf.
Sfldavinaslan hf.
Jarðboranir hf.
Sjóvá-Almainarhf.
30 40 50 60
1 Viðskipti í október (Ijósar súlur) og 1 .-29. nóvember (dökkar súlur).
í íslandsbanka, Granda og Sæplasti en
heildarupphæð og fjöldi þeirra er birtur í
meðfylgjandi töflu. Taflan næreingöngu
til viðskipta sem skráð voru í viðskipta-
kerfi Verðbréfaþings Islands á tímabilinu
en þorri allra hlutabréfaviðskipta er
skráður þar. Af hlutabréfasjóðum hafa
mest viðskipli verið með bréf í Hluta-
bréfasjóðnum hf. sem hugsanlega má
rekja að hluta til þeirrar jákvæðu um-
fjöllunar sem sjóðurinn fékk í fréltariti
samtaka fjárfesta fyrir skemmstu.
Gengi hlutabréfa hefur farið nokkuð
hækkandi á síðustu vikum eins og við
varaðbúast. I nóvemberhækkaði gengi
brél'a í Flugleiðum mest eða um 24%.
Ekki erýkja langt síðan bréf í Flugleiðum
voru seld undir nafnvirði en á mánu-
daginn 29. nóvember var gengi þeirra
komið upp í 1,25. BréfíOlíufélaginu og
Fimskipum hal'a einnig hækkað verulega
eins og sést í töflunni.
A þriðjudagsmorguninn 30. nóvember
vartalsverðurfjöldisölu-ogkauptilboða
skráður í viðskiptakerfi V erðbréfaþings.
Mikið framboð var á hlutabréfum í
íslandsbanka en 16 sölutilboð á bréfum
í bankanum voru skráð þann morgun.
Alls voru boðin frarn bréf fyrir um 4
milljónir króna á genginu 0,91-0,94 en
Hlutabréf hafa hækkað að mcðaltali um 7% á milli mánaða. Viðskipti hafa enn
fremurstóraukistogfjöldiþeirrasýniraðalmenningurmunnýtasérskattafsláttinn
í ríkum mæli í ár. Tölur um viðskipli eru í milljónum króna.
Heimild: Kaupþing hf„ Landsbréf hf. og Verðbréfaþing Isl.
• Hlutabréfamarkaðurinn
• Skattafsláttur og hlutabréf
• 300 milljónir til Vestfjarða