Vísbending


Vísbending - 23.02.1995, Blaðsíða 3

Vísbending - 23.02.1995, Blaðsíða 3
öðru leyti er hér um mikla einföldun á raunveruleikanum að ræða. Ef nú eru reiknuð meðaltöl kemur í ljós að konur eru með u.þ.b. 70% af launum karla skv. dæminu og karlar eru með hærri laun að meðaltali í báðum störfum, í báðum aldursflokkum og í báðum tignarflokkum. Ut frá þessum meðaltölum eingöngu er því freistandi að álykta að um launamisrétti sé að ræða konum í óhag. Sú ályktun er hins vegar röng í þessu tilfelli þar sem launakerfið var hannað þannig í upphafi að það hallaði á karla um 5 þúsund krónur. Karlar hafðir í betri stöðum Villan liggur í því að ekki er tekið tillit til allra mikilvægra þátta samtímis (þ.e. starfs, aldurs og tignar). Gögnin eru búin til þannig að karlar eru frekar í betri stöðunni, með hærri aldur og hærra settir. Rétta niðurstöðu má fá hér með því að meta tölfræðilega líkanið (jöfnur 1 og 2) með línulegri aðhvarfsgreiningu (því launin vorubúin til álínuleganhátt). I hagnýtum, raunverulegum verkefn- um er hið sanna form líkansins ekki þekkt og reynir þá á innsæi rannsóknar- mannsins við hönnun líkansins. Einnig er hugsanlegt að ekki fáist gögn þannig að hægt sé að meta alla mikilvæga þætti líkans. Taka verður tillit til allra þátta Af ofangreindu dæmi sést að þegar ályktað er út frá meðaltölum er úrslita- atriði að tekið sé tillit til allramikilvægra skýristærða samtímis í hinu tölfræðilega líkani. í þeirri aðferð að nota einfalt meðaltal til að bera saman tvo hópa felst að verið sé að nota einfalt tölfræðilegt líkan án skýristærða. Þetta á við um allar slíkar ályktanir, hvort sem verið er að bera sarnan laun karla og kvenna, áhættuþætti fyrir krabbameini eftir kynjum, kostnað vegnaheilbrigðismála milli landa eða launaskrið ýmissa hópa. Þessari grein er ekki ætlað að kveða uppúr um fyrirbæri eins og launaskrið eða launamisrétti hjá einstökum hópum. Til að skilja þessa hluti lil fulls þyrfti trúlega að skoða fleiri þætti en laun í krónum hjá einstökum hópum á gefnum tímapunkti. Til dæmis gæti biðtími eftir stöðuhækkun verið mismikill millihópa og aðlögun ríkis að breyttu efnahags- ástandi verið frábrugðin því sem gildir á almennum vinnumarkaði. Heimild: Dobson, J. D. Applied Multivariable Data Analysis: Categorial andMultivariate Methods, voi. II, Springer, NewYork, 1992. Höfundur er doktor í tölfrœði / Amóta launa- hækkanir og í Evrópulöndum OECD Kjarasamningarnir sem undir- ritaðir voru rnilli landssamband- anna innan ASI, VSI og Vinnumála- sambandsins á þriðjudaginn fela í sér urn 6,9% launahækkanir á almennum vinnumarkaði á tveggja ára tímabili að mati samningsaðila. Ef ekki verður um að ræða verulegt launaskrið á samnings- tímanum verða kauphækkanir hér á landi ámóta og í Evrópulöndum OECD, en þar er gert ráð fyrir um 3,1% launa- breytingum á þessu ári og 3,6% á því næsta. I samningunum er megináhersla lögð á hækkun lægstu launa og almenna kaupmáttaraukningu á grundvelli stöð- ugleika í efnahagsmálum. ÍSBENDING hækkun á mánaðarlaun. Félagar í Sam- iðn, sambandi iðnfélaga og Rafiðnaðar- sambandi Islands fá þá hins vegar 3% kauphækkun. Að lokurn hækkar des- emberuppbót úr 13 þúsundum króna í 15 þúsundir á árinu 1996. Allt að 15% launahækkun Eins og sést í meðfylgjandi töflu eru launahækkanir mismunandi vegna þeirrar „krónutöluleiðar“ sem farin var í samningunum og sérstakra hækkana á lægstu laun. Einstaklingar í allra lægstu launaþrepunum fá mesta kauphækkun á samningstímanum, eða tæplega 15% og hefur hækkun desemberuppbótar á árinu 1996 þá verið skipt niður á hvern mánuð þess árs. Kauphækkun hjá laun- þegum með 84 þúsund krónur á mánuði (en það eru meðallaun landverkafólks innan ASI fyrir dagvinnu) er 6,6%. Hlutfallslegar kjarabætur minnka svo eftir því sem ofar dregur í launastig- anum. s Utspil ríkisstjórnarinnar Krónutöluleið Samningarnir fela í sér 2.700 krónur ofan á mánaðarlaun strax við undirritun. Að auki hækka mánaðarlaun að með- talinni yfirborgun sem eru undir 84 þúsundum króna á mánuði sérstaklega, mest urn 1.000 krónur á laun undir 48 þúsundum króna og síðan lækkar upphæðin um 100 krónur við hverjar 4.000 krónursem Iaunineru hærri. Þann 1. janúar 1996 fá félagsmenn í Verka- mannasambandi Islands, Landssambandi íslenskra verslunarmanna, VR, Lands- sambandi iðnverkafólks og Þjónustu- sambandi Islands aðra 2.700 króna Hækkun mánaðarlauna á samn- ingstímanum 1995-1996 Laun f. Undir- Þann Des. Samt. Hækk. hækkun skrift 1/1‘96 '96' hækk. í% 44.000 3.700 2.700 167 6.567 14,9 48.000 3.600 2.700 167 6.467 13,5 52.000 3.500 2.700 167 6.367 12,2 56.000 3.400 2.700 167 6.267 11,2 60.000 3.300 2.700 167 6.167 10,3 64.000 3.200 2.700 167 6.067 9,5 68.000 3.100 2.700 167 5.967 8,8 72.000 3.000 2.700 167 5.867 8,1 76.000 2.900 2.700 167 5.767 7,6 80.000 2.800 2.700 167 5.667 7,1 84.000 2.700 2.700 167 5.567 6,6 88.000 2.700 2.700 167 5.567 6,3 92.000 2.700 2.700 167 5.567 6,1 96.000 2.700 2.700 167 5.567 5,8 100.000 i 2.700 2.700 167 5.567 5,6 1 Hækkun desemberuppbótar á árinu 1996 um kr. 2.000 er skipt jafnt niður á 12 mánuði. Ríkisstjórnin liðkaði fyrir samninga- gerðinni með ýmsum hætti. Af einstök- um atriðum vegur þyngst breyting á verðtryggingu fjárskuldbindinga, sem frá og með 1. apríl n.k. mun miðast við framfærsluvísitölu, og frádrættarbærni framlags launþega í lífeyrissjóði frá skattstofni. Lífeyrisfrádrátturinn mun þó koma í áföngum og verður heimilað að draga 2% af 4% framlagi launþega í lífeyrissjóði frá skattskyldum tekjum á þessu ári og keinur ákvæðið til fram- kvæmda þann 1. apríl 1995. Frá og með 1. júlí 1996 verður heimilt að draga frá 3%og allt 4% framlagið frá l.júlí 1997. Af öðrum atriðum má nefna að ríkis- s tj órn i n m u n be i t a sér fy ri r þ ví að he i m i 11 verði að telja sannarlega tapað hlutafé til rekstrargjalda, ráðist verður í aðgerðir til að taka á skuldavanda heimila og unnið verður að úrbótum í málefnum atvinnulausra. Samkeppnisstaða Það sem skiptir í raun mestu máli er hvaða áhrif samningarnir munu hafa á samkeppnisstöðunagagnvart útlöndum. Af reynslu fyrri ára verða kauphækkanir líklega heldur meiri en y fiflýsingar aðila vinnumarkaðarins gefa tilefni til að ætla. Það mun þýða meiri launabreytingar hér á landi en í helstu samkeppnislöndunum á næstu misserum og hærra verðlag. Ekki er við þ ví að búast að samningarnir hafi úrslitaáhrif á þróun raungengis á næstunni og er gengisþróun krónunnar mun stærri óvissuþáttur í því efni. 3

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.