Vísbending


Vísbending - 13.06.1996, Blaðsíða 1

Vísbending - 13.06.1996, Blaðsíða 1
ISBENDING 13. júní 1996 V i k u Af hverju hætti hagkerfið að vaxa? Einkancysla á hvern Islending (vinstri kvarði milljónir króna) og útflutningur sjávarafurða (hægri kvarði milljarðar króna) 1970-95. 30 1970 1975 1980 1985 1990 1995 Aflvél einkaneyslu Útflutningur sjávarafurða hefur til vorra daga verið aflvél einkaneyslu, og þá venjulega með eins árs töf, þ.e. mikill útflutningur á einu ári hefur kallað á aukningu á því næsta. Árið 1970 nam einkaneysla á hvert mannsbam í landinu um 560 þúsundum króna á ári að núvirði, en 1987 var samsvarandi tala 1,19 milljónir króna, sem er 113% aukning. Frá 1987 til 1995 hefur einkaneysla á mann hins vegar minnkað um rúm 14%. Röðun Islands, Noregs og Svíþjóðar innan OECD hvað varðar landsframleiðslu á mann 1970-1994 1970 1975 1980 1985 1990 1991 1992 1993 1994 Klifur og hrap íslendinga í metorðastiga OECD þjóða. Skuttogararnirogútfærslalandhelginnarfleyttuokkurfrá 19. sæti 1970 í það 5. 1980. Stöðnun síðustu ára hefur hins vegar dregið okkur niður í það 11. Á þessari mynd má einnig sjá hvemig Norðmenn og Svíar hafa haft sætaskipli. S víar voru meðal ríkustu þjóða 1970 eða í 4. sæti, en hafa verið á hraðri niðurleið síðan, era nú í þ ví 17. Þá sést einnig hvemig olíugróðinn hefur auðgað Norðmenn, yjen þeir virðast hafa tryggt sér 4. sætið til frambúðar.________________ Skýrsla Þjóðhagsstofnunar um samanburð á lífskjörum hérlendis og úti í Danmörku hefur vakið mikla athygli og verið lögð út á marga vegu. Þó er í raun mjög stutt síðan að það gat talist vafamál hvor þj óðin byggi við betri lífskjör. Skammt er síðan íslendingar voru með fátækustu þjóðum Evrópu, en fyrir aðeins 30 árum var lands- framleiðsla á mann í Danmörku 70% meiri en hérlendis. Hagvöxtur á Islandi frá 1960 var lengi vel stöðugur í kringum 5% og við hækkuðum okkur jafnt og þétt í samanburði við aðrar þjóðir. Á síðustu 10 árum hefur íslenskt hagkerfi hins vegar verið í greipum stöðnunar, landsframleiðsla staðið í stað og einkaneysla dregist þó nokkuð saman. Hvað gerðist? Af hverju var hagvöxtur svona stöðugur 1961-1986, en nær enginn á árunum 1987-1994? Hagsældíslands Hagur Islendinga hefur allt frá land- námi ráðist af því hversu öflug viðskipti þeir stunda við önnur lönd. Landið er lítið og býr yfir sérhæfðum auðlindum sem landsmenn verða að geta komið í verð erlendis til að geta keypt neysluvaming. Þetta virðist augljós hlutur, en hefur þó vafist fyrirlandsmönnum þvíjafnan hefur verið sterkur þrýstingur á að hindra frjáls milliríkjaviðskipti. Grundvöll að hag- sæld sinni lögðu landsmenn undir lok síðustu aldar er þeir komust upp á lag með að flytja út fisk og á því hefur verið byggt síðan, en að öðru leyti hefur ís- lenska hagkerfið að mestu staðið stakt og lotið sínum eigin lögmálum. Þetta má glögglega sjá af því að verðþróun á mörkuðum hér; vöru-, fjármagns- og vinnumarkaði hefur verið nánast ótengt því sem gerist ytra. Kjölfar skuttogara Hagvaxtarbylgjan á árunum 1970-87 semáðurvarnefndog sýnderámyndum hér til hliðar má rekj a að mestu til kerfis- brey tingar sem útfærsla landhelginnar og tilkoma skuttogara olli 1972-74. í kjöl- far skuttogaranna varð hagstjórnin slík að allir markaðir í landinu snerust í kringum alkomu botnfiskvinnslunnar. En bæði verðlag og kauplag voru ávallt á mikilli hreyfingu. Kaupið hækkað um tugi prósenta þá samið var og verðbólgan fylgdi eftir. Gengisskráningin varhelsta hagstjórnartækið er yfirvöld beittu, en gengið var fellt þegar innlendur kostnaður var að kæfa útgerðina. Fjár- magnsmarkaður var varla til, Alþingi ákvað vextina, fj ármagnshreyfingar til og frá landinu voru ófrjálsar og lán voru skömmtuð til fyrirtækja af hinu opinbera. En á meðan þorskurinn veiddist lék allt í lyndi, gjaldeyrir streymdi inn í landið og hagkerfið gekk á fullum dampi, þ.e. 5% vöxtur á ári. Allir höfðu atvinnu og hér var byggt upp nútímalegt þjóðfélag með mikilli hagsæld. Óbeinn auðlindarskattur Fiskveiðar við ísland eru gífurlega arðsamar og og það var sú arðsemi sem dró upp lífskjör á Islandi. Uppgangur í sjávarútvegi hækkaði laun og annan Efni blaðsins I forsíðugrein er fjallað unt þróun íslenska hagkerfisins síðasta aldar- fjórðunginn. Þá skrifar Tryggvi Þór Herbertsson um hvernig metaeigi tjón af . völdum umferðaslysa.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.