Vísbending


Vísbending - 15.02.2002, Blaðsíða 2

Vísbending - 15.02.2002, Blaðsíða 2
ÍSBENDING Enron — áhrifin Hneykslið í kringum bandaríska orkufyrirtækið Enron hefur vakið athygli á ýmsu sem tengist reikn- ingshaldi fýrirtækja. Allt í einu stóðu öll spjót á endurskoðunarfyrirtækjum en eitt það stærsta og virtasta í heiminum, Andersen, sá um endurskoðun reikn- inga Enrons og að því er virðist sá það einnig um að eyða þeim. Stormurinn Bandaríski hlutabréfamarkaðurinn hefur orðið fyrir nokkrum áföllum vegna þess að ijárfestar virðast hafa vaxandi áhyggjur af reikningshaldi fyrirtækja. Dow Jones hefur tekið nokkrar dýfurnar í febrúar sem má rekja til þessa og verða „Enron-áhrifín“ sennilega lengi í manna minnum. Mánu- daginn 4. febrúar lækkaði Dow Jones um 220 punkta og Nasdaq um 56 punkta og vikan í kjölfarið reyndist sú erfiðasta síðan hlutabréf tóku að hækka á ný eftir að áhrifín vegna hryðjuverkanna 11. september voru gengin yfír. Þó að Enron-áhrifin hafí komið skriðunni af stað þá voru það fréttir af vafasömum reikningsskilavenjum annarra fyrirtækja sem gerðu fjárfesta taugaveiklaða í fyrrgreindri viku. Fyrst var það þó skýrsla sem lögð var fram í upphafi vik- unnar um misnotkun Enrons á fjár- málaaðgerðum utan efnahagsreiknings. Fyrirtækið Tyco viðurkenndi svo að hafa eytt 8 milljörðum Bandaríkjadala á þremurárum í 700 smáarfjárfestingar án þess að tilgreina þær í reikningshaldinu. Önnur fýrirtæki, eins og PNC Financial Services, Invensys og sjálfur risinn General Electric, voru einnig sökuð um vafasamar bókhaldsvenjur og um tíma lækkaði verð í hlutabréfúm þeirra mikið. Það er að mörgu leyti erfítt að átta sig á hvort um sé að ræða storm f vatnsglasi eða lognið á undan storminum. Hagsmunatengsl Enron - Andersen málið hefur aftur vakið upp umræðu um tengsl endur- skoðunarfyrirtækja og ráðgjafafyrir- tækja sem var umfangsmikil um stutt skeið fyrir tveimur árum eða svo (sjá einnig 34. tbl. 2000, „Góð ráð dýr“). Arthur Lewitt, formaður bandaríska fjármálaeflirlitsins, var einn af þeim sem gagnrýndi þetta fýrirkomulag á sínum tíma og spurði hvemig endurskoðendur gætu verið sjálfstæðir og óhlutdrægir þegar einungis 30% af rekstrartekjum stærstu endurskoðunarfyrirtækjanna væru vegna endurskoðunar. Til marks um þetta þá hafði Andersen meiri tekjur afráðgjöftilEnrons(27 milljónirBanda- ríkjadala) en endurskoðun (25 ntilljónir Bandaríkjadala) árið 2000. Rekstrarráðgjöf ýmiss konar hefur lengi verið vaxtarbroddur þessara fýrir- tækja. Hvað varðar stefnumótun fýrir- tækja þá virka þessir tveir þættir ágæt- legasaman í rekstri endahafaallirrisarnir fímm í endurskoðun, þ.e. Pricewater- houseCoopers, Ernst & Young, Deloitte Touche Tohmatsu, KPMG og Ander- sen, haft viðamiklarráðgjafadeildir. Tvö þeirra hafa losað sig algerlega við ráð- gjafaarminn, Ernst & Young, sem seldi hann til Cap Gemini fýrir tveimur árum, ogKPMG.I ágúst árið 2000 var ráðgjafa- og endurskoðunarfyrirtækinu Arthur Andersen skipt upp vegna innri deilna um tekjumyndun á milli ráðgjafararms- ins og endurskoðunararmsins. Ráð- gjafararmurinn varð að fyrirtæki sem heitir Accenture en endurskoðunar- arnturinn fékk að halda Andersen- heitinu. Það hefur þó ekki breytt því að umfangsmikill hluti af starfsemi fýrir- tækisins snýst greinilega enn um ráð- gjöf eins og áðurnefndar tölur styðja. Enron-málið hefur aftur komið skrið á uppskiptingu risanna þar sem stjórn- endur PricewaterhouseCoopers og Deloitte Touche Tohmatsu lýstu því yfir fýrir skömmu að þeir ætluðu að draga ráðgjafahlutannútúrsínumfýrirtækjum. Með því að aðskilja þessar rekstrar- einingar er það von flestra að það dragi úr því að slík hagsmunatengsl geti brenglað gagnrýni endurskoðenda á reikningshald fýrirtækja en slík tengsl bjóða vissulega hættunni heim. Bókhaldsbrellur nron-málið hefur þó ekki einungis varpað kastljósinu á hagsmuna- tengsl endurskoðunarfyrirtækja sem geta fengið starfsmenn þeirra til þess að brjóta margar af helstu reglum endur- skoðenda. Enron-máliðfjallareinnigum almennar reikningsskilavenjur. A und- anförnum árum, sérstaklega í tengslum við hátæknifyrirtæki og nýjar fjár- mögnunarleiðir, hafa álitamálin hrann- ast upp. Nýlega fjallaði Stefán Svavars- son endurskoðandi um eitt slíkt hér í Vísbendingu (46. tbl. 2001) en það var skráning verðbréfaeignar fyrirtækja í reikningsskilum. I tímaritinu Economist voru fyrri skömmu (9.-15. febrúar) dregnir upp þeir helstu þættir sem eru á mjög gráu svæði um þessar mundir. - Aðgerðir utan efnahagsreiknings. Ymsar leiðir eru notaðar til þess að ýta hvort sem er skuldum eða eignum út úr efnahagsreikningum. Vinsæl leið hér á landi eru eignarleigusamningar sem gera fýrirtækjum t.d. kleift að „eiga“ hluti eins og vinnuvélar og flugvélar án þess að það komi nokkurs staðar fram í reikn- ingshaldinu. Enron-hneykslið snýst að miklu leyti um tilraunir fýrirtækisins til að fela ástandið með „sérstökum til- vikum“ sem hægt er að draga út úr aðalyfírlitinu. - Hlutabréfaívilnanir starfsmanna. Mörg fýrirtæki hafa beitt því óhóflega á undanförnum árum að þorga starfs- mönnunt stóran hluta launa sinna með hlutabréfaívilnunum en það telst ekki til kostnaðar og þannig geta þau aukið hagnað sinn verulega. - Afleiðusamningar. Eignir eru venju- lega metnar við sögulegu kostnaðarvirði en það er mjög erfítt að meta virði fjár- málasamninga sem geta sveiflast veru- lega í virði frá degi til dags. Ekki er síst erfítt að meta hvað gera á við afleiðu- samninga sent notaðir eru til þess að tryggja virði eigna sem ekki eru metnar á markaðsvirði í bókhaldinu. - Oáþreifanlegar eignir. I netbólunni sem sprakk í byrjun árs 2000 var virði fýrirtækja réttlætt með himinháu mati á óáþreifanlegum eignum eins og ímynd og markaðshlutdeild. Þessar eignir er sjaldnast hægt að fínna í reiknings- haldinuog gerirþaðmatávirði fýrirtækja þeim mun erfiðara. - Tekjumyndun. Það hefur alltaf verið farið nokkuð frjálslega með það hvenær tekjumyndun á sér stað. Enron skráði t.d. tekjur af samvinnuverkefni við Blockbuster Video í reikningum sínum þó að samstarfið væri einungis enn í startholunum. Brellurnar eru margar sem gera það að verkum að erfiðara er fýrir fjárfesta að átta sig á stöðu fýrirtækja. Að vissu leyti má segja að það sé þeim sjálfum að kenna þar sem þeir haga sér í sífellt minna mæli eins og eigendur, þó er það ef til vill ósanngjarnt þar sem ábyrgðin liggur fýrst og fremst hjá stjórnendum fyrirtækja en það er skylda þeirra að upplýsa eigendur fýrirtækisins um stöðu þess og stefnu eftir bestu getu. Lélegurbrandari Til er brandari sem er eitthvað á þá leið að fyrirtæki nokkurt auglýsir eftirbókhaldaratil starfa. Þegarumsækj- endur koma í viðtal er einfalt dæmi lagt fýrir þá og spurt um niðurstöðuna. Hver áeftiröðrumkemurinn ogreiknardæmið samviskusamlega og rökstyður niður- stöðuna. Loks kemur umsækjandi sem lítur á dæmið eitt stundarkorn og spyr: „Hver viltu að niðurstaðan verði?“ Hann var ráðinn samstundis. Að undanförnu hefur þetta frekar hljómað eins og raunsaga en brandari. 2

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.