Vísbending


Vísbending - 22.03.2002, Blaðsíða 3

Vísbending - 22.03.2002, Blaðsíða 3
ISBENDING Ekki er álið sopið þó í ausuna sé komið (frh.) Ólafur Klemensson hagfræðingur Fyrri hluti þessarar t>reinar birtist í síðasta tölublaði. Talið er líklegt að álverð haldist tiltölulegalágtánæstu mánuðum, eða undir US$1400/tonnið, og verði að jafnaði um US$ 1350/tonnið á þessu ári en til samanburðar var meðal- verðið árið 2000 US$ 1550 og US$ 1445 á seinasta ári. Það er ekki aðeins að álverð sveiflist allmikið milli ársmeðaltala, sveiflan milli hæstu og lægstu verðpunkta var á bilinu 5-20% á árunum 1995-2001, heldur er verðsveiflan innan ársins mikil eða á bilinu 10-30% milli verðpunkta áþessum árum (sjá mynd 1). í sjálfu sér er þetta eitt af einkennum hrávörumarkaðar þar sem sambandið milli framboðs og eftir- spurnar er mjög viðkvæmt. Ekki þarf mikið til svo jafnvægið raskist og þá með verulegum skammtímabundnum verðsveiflum. Verðsveiflur ' purn eftir áli veltur mikið á því hvemig ► gengur hj á framleiðendum flutninga- Myitd 2. Notkun á áli árið 1998 ) Vélar/tæki 4% Varan.neysluvörur Byggingaiðnaöur 16% Flutningastarfsemi 33% Pökkunariðnaður 25% tækja, svo sem bifreiða og flugvéla. Þá er byggingariðnaðurinn stór og stækk- andi notandi áls (sjámynd 2). Báðirþess- ir geirar efnahagslífsins eru mjög næmir fyrir hagsveifluáhrifum. Ljóst er að veru- legur samdráttur hefur orðið í flugstarf- semi í heiminum á seinustu mánuðum og vænta má að verulega dragi úr flug- vélaframleiðslu á næstu mánuðum og misserum. Þótt flugvélaiðnaðurinn sé hlutfallslega ekki stór notandi að áli að magni til er hann mjög mikilvægurkaup- andi, þar sem það ál sem fer til flugvéla- smíði er mjög dýrt hágæðaál (silfurál). Þar sem ál er notað í æ rfkari mæli í iðnaðar- og tækjaframleiðslu, í umbúðir og í byggingariðnaði er mjög sterkur undirliggjandi vaxtaþáttur í spurn eftir áli. Almennt er talið að verð markist mun frekar af eftirspurnaráhrifum en fram- boðsþáttum. Þetta skýrir þá staðreynd að eftirspurn eykst stöðugt og raunverð á áli hefur lækkað mun minna en á öðrum grunnmálmum svo sem kopar og zinki. Þetta kemur einnig fram í því að verð- fallið á seinustu mánuðum er minna að tiltölu en vænta mætti út frá samdrætti í iðnaðarframleiðslu í heiminum Stærstu sveiflurnar í álverði hafa komið í kjölfar kreppuástands eins og eftir l. og 2. olíukreppuna (1971-73 og 1980-83) og Asíukreppuna 1998.Hægari efnahagsframvinda í heiminum og skýr samdráttareinkenni í Bandaríkjunum og Japan hafa því ekki framkallað svipaðar verðsveiflur og áður hafa sést í tengslum við fyrri samdráttarskeið í heimsbú- skapnum (sjá mynd 3). Sýnt hefur verið fram á að sterkt eða nokkuð sterkt sam- band er milli hnattrænnar efnahags- sveiflu og spurnar eftir áli og þar með á verðbreytingar. Ljóst er að það er sér- staklega sterkt samband milli þróunar álverðs og efnahagsframvindunnar í Bandaríkjunum. Spá um framvindu Þrátt fyrir að álverð hafi verið í lægð undanfarin misseri vegna minnkandi eftirspurnar, er almennt talið að álmark- (Framhald á síðu 4) Mynd 1. Máitaðarlegar verðsveiflur á áli 1995-2002 Mynd 3. Iðnaðarframleiðsla í Bandaríkjunum, hreyting milli ára og þróun álverðs -Iðnaðarfr. br. milli ára —— Álverð (hægri ás) Myitd 4. Þróun álverðs 2000-2006 Mynd 5. Áœtluð eftirspurn, framboð og framleiðslugeta á áli 2000-2006 2000 2001 2002 2004 2005 | □ Heimsframleiðslugeta ■ Heimsframleiðsla □ Heildamotkun 3

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.