Vísbending


Vísbending - 05.03.2004, Blaðsíða 2

Vísbending - 05.03.2004, Blaðsíða 2
V ISBENDING Eitt borð eða tvö? Umræðan um stjórnarkerfi fyrir- tækja hefur víðast hvar aukist veruiega síðustu misserin, aðal- lega vegna hneykslismála í Bandaríkj- unum. Stjórnvöld og hagsmunaaðilar markaða í ólíkum löndum hafa fengið mun meiri áhuga á stjórnarháttum fyrir- tækja og hafa leitast við að setja leiðbein- andi reglur um hvað góðir stjórnarhættir fela í sér. Um miðjan marsmánuð er leið- beininga að vænta hér á landi að frum- kvæði Verslunarráðs í samstarfi við Kauphöll Islands og Samtök atvinnu- lífsins. Þessir aðilar hafa leitað fyrir- mynda eriendis að slíkum leiðbeiningum. Það er þó að mörgu leyti varhugavert vegna þess að þó að stjórnarkerfi fyrir- tækja geti virst svipuð á yfirborðinu eru þau jafnan mjög ólík þegar kafað er dýpra í innviði kerfisins. Með stjórnarkerfi er ekki einungis átt við stjórnir fyrirtækja heldur alla þá aðila sem geta haft áhrif á stjórnun fyrirtækja en skilgreiningar geta verið nokkuð mismunandi. Ein leiðin sem notuð hefur verið til að flokka stjórnarkerfi er að tala annars vegar um engilsaxneska kerfið og hins vegar það evrópska. Meginmunurinn er að stórir fjárfestar hafa miklu meiri völd í fyrir- tækjum í Evrópu en í Bandaríkjunum og Bretlandi þar sem eignadreifing í fyrir- tækjum er mun meiri í engilsaxnesku löndunum. Annar þáttur sem valdið hef- ur talsverðum misskilningi er að engil- saxneska kerfið einkennist af því að fyrirtæki hefur eina stjórn en evrópska kerfið einkennist af því að fyrirtæki hafa tvískipta stjórn. Þetta þarfnast nánari umfjöllunar. Tvö hlutverk Ifræðilegri umræðu umhlutverkstjórna fyrirtækja er í meginatriðum talað um tvenns konar hlutverk, annars vegar eftirlitshlutverk stjórnar og hins vegar ákvörðunarhlutverk stjórnar. Til þess að útskýra þetta betur þá hefur ákvörð- unarlíkan Fama og Jensens stundum verið notað til einföldunar. I því líkani er talað um fjóra þætti ákvörðunarferlisins: tillögugerð, staðfestingu, framkvæmd og eftirlit. Ef þetta ferli er yfirfært á hin tvö hlutverk stjórna í fyrirtækjum þá felur eftirlitshlutverk stjórnar í sér stað- festingu og eftirlitsþáttinn en ákvörð- unarhlutverkið felur í sér tillögugerð og framkvæmd. Engu að síður er ekki alltaf einfalt að greina á milli hvaða þættir tilheyra hvoru hlutverki fyrir sig. Henry Mintzberg setti þá kenningu fram fyrir nokkrum árum að eftirlils- hlutverkstjórnafæli í sér ráðningu fram- kvæmdastjóra, mat og eftirlit með ákvörðunum framkvæmdastjórans og inngrip þegar fyrirtæki lendir í al varlegri krísu. Sögulega hefur þetta fyrst og fremst verið hlutverk allra stjórna en á síðustu áratugum hafa stjórnir fengið aukið ákvörðunarvald og á allra síðustu misserum hefur það verið dagsskipunin að stjórnir fyrirtækja ættu einmitt að taka mun meiri þátt í stefnumótun og ákvörð- unartöku ífyrirtækinu. Akvörðunarhlut- verk stjórna felur þannig í sér að stjórnin leggi í raun línurnar í stefnumótuninni, taki þátt í framkvæmd hennar og hafi jafnframt eftirlit með henni. Hugmyndin er að reynsla, þekking og sambönd stjórnarmanna geti verið mikilvæg fyrir stefnumótunarferlið, sérstaklega í vax- andi samkeppni og flóknara viðskipta- umhverfi. Það hefur aftur á móti komið æ betur í ljós að þessi tvö hlutverk eiga ekki alltaf mjög vel saman. Stundum er talað um „þversögnina í þátttöku stjórnar“. Vandamálið felst í því að þegar stjórnin tekur fullan þátt í ákvörðunarferlinu þá er hún farin að hafa eftirlit með sjálfri sér. Hneykslismál síðustu ára sem tengj- aststjómarkerfi fyrirtækjahafam.a. verið rakin til þess að eftirlitsþætlinum hefur ekki verið sinnt. Þannig hafa fleiri og fleiri komist að þeirri niðurstöðu að það kann ekki góðri lukku að stýra að stjórnir fyrirtækja sinni þessum tveimur hlul- verkum samtímis. Tvískipt stjórn Evrópska stjórnarkerfið með tví- skiptri stjórn er þess eðlis að það leysir þá þversögn sem felst í því að stjórnir fyrirtækja sinni bæði eftirlits- og ákvörðunarhlutverkinu. Það felur í sér að það eru í raun tvær stjórnir í fyrir- tækinu, annars vegar eftirlitsstjórn og hins vegarrekstrarstjórn. Eftirlitsstjórn- in á að vera fullkomlega óháð rekstr- arstjórninni og hlutleysi hennar tryggt með utanaðkomandi mönnum sem tengj ast ekki fyrirtækinu. Val meðlima í eftir- litsstjórn er mismunandi eftir löndurn en víðast hvar er það með þeim hætti að hagsmunaaðilar frekar en hluthafar ráða ferðinni. Þannig hefur hluthafafundur einungis takmarkað vald til þess að velja aðila í eftirlitsstjórnina með því að tilnefna menn í stjórn. Með sama hætti hafa starfsmenn möguleika á að tilnefna aðila í eftirlitsstjórn og víða hafa þeir rétt á fulltrúaí stjórn eins og í Þýskalandi. Ef sæti losnar í eftirlitsstjórn eru það stjórnarmeðlimir sjálfir sem lilnefna og velja nýjan aðila þó að hlulhafafundur og starfsmenn hafi rétt til þess að hafna þeim aðila. Að öðrum kosti er þar til gerð nefnd óháðra aðila sem sér um að velja nýja aðila í eftirlitsstjórnina. Eftirlitsstjórnin sér svo um að velja fólk í rekstrarstjórnina sem er yfirleitt eingöngu skipuð starfsmönnum fyrir- tækisins. Rekstrarstjórnin sér um að móta stefnu fyrirtækisins og fram- kvæma. Þannig er ákvörðunarhlutverk- ið og eftirlitshlutverkið í höndum ólíkra aðila og því minni hætta á hagsmuna- árekstrum í stjórnarstarfinu. Þessi tví- skipting stjórnar hefur einnig þann tilgang, sem er mikilvægt, að draga úr yfirvaldi leiðandi hluthafa og að þeir nýti það vald fyrst og fremst með eigin hagsmuni í huga en ekki hagsmuni allra hluthafa eða annarra hagsmunaaðila. Þó að þessi tvískipting stjórnar sé víða lögfest í Evrópu er einnig víða að finna aðstæður þar sem það er valfrítt hvort stjórnarkerfi fyrirtækja feli í sér eina eða tvær stjórnir. Það er líka álitamál hvort að þetta kerfi sé með öllu skilvirkt eða betra en ein stjórn sem sinnir bæði eftirlits- og ákvörðunarhlutverkinu. Ein stjórn Engilsaxneska kerfið felur í sér einungis eina stjórn. Að vissu leyti eru sögulegar ástæður að baki þessurn mun og hann kristallast í hugmynda- fræðilegum ágreiningi um hverjireigi að hafa áhrif á rekstur fyrirtækja. í engil- saxnesku löndunum eru það hluthafar sem eiga að ráða ferðinni en í evrópska kerfinu er gert ráð fyrir að aðrir hags- munaaðilar hafi einnig nröguleika á að hafa áhrif. Það eru því yfirleitt hluthafa- fundir sem velja stjórnir fyrirtækja þó að t.d. í bandaríska kerfinu hafi það oft og tíðum verið stjórnandi fyrirtækisins sent hafi ráðið því hverjir sitja í stjórn. Vandamálið við eina stjórn er eins og áður hefur verið rakið að eftirlits- og ákvörðunarhlutverk stjórna er á sömu hendi. Þannig kemur upp sú staða að stjórnir fyrirtækja geta verið að hafa eftirlit með sjálfum sér. Lengi vel skipti þetta ekki verulegu máli vegna þess að sögulega hafa stjórnir að mestu verið formsatriði í stjórnarkerfi fyrirtækja og gegndu einungis að vissu marki eftir- litshlutverki sfnu og höfðu lítið ákvörð- unarhlutverk. Stundum var talað um að stjórnir fyrirtækja hefðu einungis það hlutverk að góðkenna ákvarðanir stjórn- andans sem réði í raun lögum og lofum í stjórninni. í seinni tíð hefur hins vegar verið lögð áhersla á mikilvægi stjórnar í stjórnarkerfi fyrirtækja. Þannig hefur stjórnin þó að hún sé óskipt bæði eftir- Iits- og ákvörðunarhlutverk. Y firleitt er talað um breska og banda- ríska stjórnarkerfið í sömu andrá en þótt að stjórnin sé óskipt þá er talsverður (Framhald á síðu 4) 2

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.