"Jfi"Mii Viðtal við Hörð Sigurgestsson TÍMIBREYIINGA HÖrður Sigurgestsson var forstjóri Hf. Eimskipafélags íslands. í tvo áratugi stýrði hann verðmætasta hlutafélagi íslands á tuttugustu öldinni. Þegar Hörður settist í forstjórastólinn árið 1979 var Eimskipafélagið skipafélag en í lok tuttugustu aldarinnar var Eimskipafélagið flutningafyrirtæki og fjárfestingarfélag með skýra framtíðarsýn. Hörður er maðurinn sem ,,nútímavæddi" Eimskipafélagið og það hafði ekki einungis áhrif á félagið heldur íslenskt atvinnulíf í heild sinni. Ritstjóri Vísbendingar ræddi við Hörð Sigurgestsson um fortíð og framtíð í íslensku viðskiptalífi.