BlRNA ElNARSDÓTTIR - Markaðskona og hugmyndafræðingur Hvað eru peningar? Frelsi. Hvernig er best að eyða peningum? Til að tryggja langvarandi getu til skókaupa er ráðlagt að setja peninga í fjárfestingar og sparnað. Hver er munurinn á að eiga ofgnótt og ekkert afpeningum? Það er líklega verra að hafa ekkert en ofgnótt þótt hvort tveggja geti valdið hugarangri. Hvernig er hgt að lýsa peningahyggjunni" álslandi ídag? Þetta reddast" er hugsunarháttur sem er á undanhaldi, sem betur fer. Fjármálaáhugi fólks er að aukast - Peningarnir þínir, blað sem íslandsbanki gaf um um fjármál fékk ótrúlega góðar undirtektir svo og námskeið sem um þúsund manns hafa sótt og fræðst um fjármál. Mýtur um peninga 1. Look after the pennies and the pounds will take care of themselves." Ég dvaldi 6 ár í Skotlandi og þetta heyrði ég oft enda eru Skotar einstakir reglumenn þegar kemur að peningum - minni reglumenn þegar kemur að skosku viskíi!! 2. Money talks" - í merkingunni að peningar færi fólki völd og áhrif - líklega gömul sannindi og ný. 3. Ljóska nokkur á að hafa sagt einu sinni: Ég skil ekki fólk sem segir að ekki sé hægt að kaupa hamingju fyrir peninga - þetta fólk veit ekki hvar á að versla." GUÐMUNDUR ÓlAFSSON - Hagfræðingur og byltingarsinni Hvað eru peningar? Tæki til að Ijúka sambandi.til dæmis viðskiptasambandi. Öðrum samböndum má yfirleitt einnig ljúka með peningagreiðslu. Hvernig er hest aö eyða peningum? Það er ekki best að eyða peningum. Hver er munurinn á að eiga ofgnótt og ekkert af peningum? Það er enginn munur, það er ekki mögulegt að eiga ofgnótt peninga og að sama skapi ómögulegt að vera blankur. Hvernig er hgt að lýsa peningahyggjunni" álslandi idag? Eins og peningahyggju annana, að græða ógeðslega mikið fljótt. Mýtur um peninga. 1. Að peningaleg sjónarmið séu ómannleg, ekkert er mannlegra en peningar. 2. Að peningar séu afl þess hlutar sem gera skal, oftast gildir hið gagnstæða. 3. Að ekki sé hægt að kaupa hamingju, öðm nær. Lífshamingja er eitt af því fáa sem hægt er að kaupa. -23-