Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Vķsbending

Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 51. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Vķsbending

						VISBENDING

m   i

Bankamennirnir

Fyármálabyltingin á íslandi hefur farið eins og hvirfilvindur

um íslenskt viðskiptalíf og þjóðfélag. Eftir stendur þó ekki

rjúkandi rúst eins og yfirleitt þegar slíkir vindar blása heldur

hefur þetta að mörgu leyti verið meira eins og „h vítur stormsveipur".

Ekki er endilega allt tandurhreínt heldur hefur umbreyting átt sér

stað eins og skipt hafi verið út húsgögnum og veggir málaðir í

skærum litum þegar þeir voru áður í sauðalitunum. íhaldsemi á

íslandi hafði gert það að verkum að viðskipta- og efnahagslífið hafði

ekki fengið að þróast eins og í nágrannalöndunum. Bankakerfíð

í faðmi ríkisins var einn helsti dragbíturinn. En ástæðurnar voru

fleiri.Island varalltaf svo „einstakt" að önnur lögmál urðu aðgilda

hér en annars staðar. Þetta var að mörgu leyti póiitískt tangarhald

og þröngsýni fortíðarhyggjunnar. Mörg þessara viðhorfa eru enn

í „góðu gildi". Krafan um endurskipulagningu kerfisins kom

upphaflega frá ungum mönnum sem vildu „báknið burt" en

vindurinn var allur úr þeim þegar reyndi á. Hins vegar var það

alþjóðavæðingin og þátttaka í Evrópska efnahagssvæðinu sem

skipti sköpum í þessu frjálsræðisferli. Þá var tími til kominn að

samræma reglur og aðstæður því sem gerðist annars staðar. Hér á

landi var það ný kynslóð ungs fólks sem lék lykilhlutverk í þessari

byltingu, fólks sem varekki þjakað af einhverjum fortíðardraugum

og minnimáttarkennd heldur skynjaði sprengikraft þjóðarinnar og

tækifæri nýrra tíma. Bankamennirnir voru arkitektarnir.

Viðskiptabankarnir þrír, KB-banki, Landsbanki og íslandsbanki

hafa verið miðpunktur þeirrar þróunar sem hefur átt sér stað á

undanförnum árum. Stjórnendur þeirra, þrír ungir menn sem komu

inn í fjármálageirann á upphafsstigum byltingarinnar, eru með

áhrifaríkustu mönnum þjóðarinnar. Þetta eru þeir Hreiðar Már

Sigurðsson hjá KB-banka, Bjami Ármannsson hjá íslandsbanka og

Sigurjón Þ. Árnason hjá Landsbankanum.

Hreiðar Már Sigurðsson kom til Kaupþings árið 1994 og starfaði

fyrst með Bjarna Ármannssyni. Sigurður Einarsson var ráðinn

forstjóri Kaupþings árið 1996 og Hreiðar Már varð aðstoðarforstjóri

árið 1998, þegar Bjarni fór til FBA. Hreiðar Már lék stórt hlutverk

í útrás bankans og dvaldist m.a. tvö ár í New York. Hann kom

heim og tók þátt í yfirtökunni á Búnaðarbankanum árið 2003 og

var gerður að forstjóra KB-banka það sama ár. Hreíðar Már hefur

vaxið með fyrirtækinu í toppstöðuna.

Sigurjón Þ. Árnason kom til Búnaðarbankans árið 1995

sem yfirmaður hagfræði- og áætlunardeildar. Sigurjón stýrði í

framhaldinu rekstrarsviði bankans og byggði upp verðbréfa- og

fyrirtækjasvið. Þegar Kaupþing tók yfir Búnaðarbankann árið

2003 var Sigurjón „keyptur" yfir í Landsbankann og hefur síðan

verið þar í bankastjórn ásamt Halldóri J. Kristjánssyni.

Bjarni Armannsson var einnig „alinn upp" hjá Kaupþingi og

stýrði fyrirtækinu um tíma. Hann tók við Fjárfestingarbanka

atvinnulífsins (FBA) og leiddi einkavæðingu hans sem gaf

jafnframt tóninn fyrir einkavæðingu ríkisbankanna. Þrátt fyrir

skammlífi bankans undir merkjum FBA lék bankinn með Bjarna

í fararbroddi lykilhlutverk að hrista upp í kerfinu eins og það

var. FBA og Islandsbanki sameinuðust árið 2000 og var Bjarni

fenginn í æðstu stöðu sameinaðs banka, fyrst með Val Valssyni

en varð svo einn forstjóri árið 2003.

Þræðir og örlög þessara þriggja manna eru tvinnuð saman með

skemmtilegum hætti, þeir hafa í senn verið hindrun hver annars

og skapað hver öðrum tækifæri. Brotthvarf Bjarna úr Kaupþingi

skapaði tækifæri fyrir Hreiðar Má og yfirtaka Kaupþings á

Búnaðarbanka ýtti Sigurjóni yfir f Landsbankanna. Samkeppni

bankanna og áhugi þeirra að leiða framþróun fyrirtækjanna hefur

þó spilað hvað stærst hlutverk í frama þeirra og árangri. Ritstjóri

Vísbendingar ræddi við bankastjórana þrjá, hvem í sínu lagi, í

nóvember. Svörþeirra þriggja gefa heildstæða mynd af þróun og

framtíð íslenska bankakerfisins.

-32-

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48