Útflutningurinn var fyrsta skref þeirra í fyrirtækjarekstri. Það hefur aila tíð einkennt bræðurna hve áhugasamir þeir eru um að læra. Menn muna eftir þeim úr verkefnum sem Útflutningsráð stóð fyrir í byrjun tíunda áratugarins. Einn þátttakandi í þessu verkefni sagði að áhugi þeirra og áræðni væri vísbending um að þeir myndu ná langt". Engan grunaði þó hve langt og sennilega allra síst þá sjálfa. Það hefur fylgt þeim bræðrum í viðskiptum að menn hafa trúað á þá. Forsvarsmenn Granda voru þeir fyrstu sem settu tíma og peninga í framrás fyrirtækisins, fyrst í áföngum, en þegar allt stóðst sem þeir sögðu" keypti Grandi um 40% hlut í Bakkavör í hlutafjárútboði árið 1995. Því samstarfi lauk ekki fyrr en árið 2001 þegar Grandi seldi sinn hlut í fyrirtækinu enda var hlutverki hans lokið í uppbyggingu félagsins. Bakkavör og Kaupþing tóku höndum saman árið 1998 og hafa þau tryggðabönd haldist síðan og hvorugt fyrirtækið hefði líklega náð jafnlangt og raun ber vitni ef ekki hefði verið fyrir stuðning hins. Þegar tímaritið Frjáls verslun útnefndi bræðurna í Bakkavör menn ársins 2001 þökkuðu þeir bæði Brynjólfi Bjarnasyni og Sigurði Einarssyni fyrir stuðninginn við þróun félagsins. Brynjólfur er fyrrvcrandi forstjóri Granda og sat í stjórn Bakkavarar allt frá því að Grandi kom inn í félagið til ársins 2004. Hann stýrir nú Landssímanum sem bræðurnir keyptu, ásamt öðrum, á árinu. Sigurður Einarsson er starfandi stjórnarformaður KB-banka. Bræðurnir hafa lært af samstarfsmönnum sínum og hugsanlega útskrifast í því samstarfi og þess vegna geta þeir haldið áfram ótrauðir. Árið 2000 framleiddi Bakkavör sjávarafurðir og var komin á góðan skrið í útrás, hafði keypt upp stórt fyrirtæki í Svíþjóð og starfaði víðs vegar um Evrópu. Bræðurnir voru orðnir talsvert sjóaðir í alþjóðavæðingunni, bæði í útflutningi og uppkaupum á erlendum fyrirtækjum. Þá varð aftur á móti talsvert stílbrot í fjárfestingum félagsins þegar þeir keyptu breska fyrirtækið Wine & Dine síðla árs 2000. Ástæðan var að þrátt fyrir arðsaman rekstur var innri vöxtur Bakkavararekki nema 3% á ári og það var Ijóst að ef ætti að tryggja áframhaldandi vöxt yrði sá vöxtur að byggjast á uppkaupum. Við þurftum að setjast niður og spyrja okkur grundvallarspurninga. Annaðhvort drögum við saman seglin og hættum að leggja sömu áherslu á vaxtarstefnu og áður eða við verðum að finna aðrar leiðir til þess að vaxa." Það var hins vegar erfitt að finna fyrirtæki sem féllu inn í þann ramma sem Bakkavör hafði sett sér varðandi uppkaup, þ.e. fyrirtækin sem voru í boði Ný samstæða - - fjárhagslegt yfirlit 2004' Bakkavör Geest Pro-forma Pro-forma £m 2004 2004 2004 2004ÍSK3 Sala2 149,6 830,6 980,2 122,5 %Vöxtur 18,0% 5,0% 6,7% 6,7% EBITDA 24,8 74,6 99,4 11,6 %framlegð 16,6% 9,0% 9,5% 9,5% EBIT 21,0 36,4 57,4 7,0 %framlegð 14,0% 4,1% 5,5% 5,5% Handbærtfé frá rekstri 16,5 90,3 106,8 13,0 /. Samkvæmt ársreikningi Bakkavör Groitp og Geesí PLC. Engin viðskiptí voru á milli félaganna fyrir samrunann. 2. Samanburðarhfar uppgjörsaóferóir, breylingin hefur engin áhrifá rekstrarqfkomu. 3. Tölur i milljördum króna. voru ekki fýsileg hvað gæði snerti miðað við verð. Það voru mjög takmörkuð tækifæri" í framleiðslu á sjávarafurðum sem varð til þess að við vildum skoða út fyrir þann geira. Þá varð okkur starsýnt á Wine & Dine en fyrirtækið hafði verið viðskiptavinur okkar í tíu ár. Við þekktum það ágætlega og höfðum oft dáðst að því sem þeir voru að gera." Þetta var ört vaxandi fyrirtæki í matvörugeiranum í Bretlandi. Við ákváðum að hitta eigandann og gera honum tilboð og við fengum það fyrirtæki á mjög hagstæðu verði. Það var akkúrat fyrirtæki sem hentaði okkur vel." Þar með var fyrsta skref Bakkavarar tekið inn á breska markaðinn. Síðan snerust hjólin hratt eftir það. Þá vorum við komnir þangað með annan fótinn. Og við áttuðum okkur á að þama er mikið af tækifærum." Wine & Dine var keypt fyrir sjö milljónir punda (900 milljónir króna). Einungis ári síðar, síðla árs 2001, tók Bakkavör miklu stærra stökk inn á markaðinn með 102 milljóna punda (15,6 milljarða króna) yfirtöku á Katsouris Fresh Foods (KFF). Það voru kaupin sem breyttu ekki einungis fókus Bakkavarar heldur höfðu gríðarmikil áhrif á útrásarsögu íslendinga, eins og Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB-banka, benti á í viðtali við Vísbendingu. Þetta voru kaup sem heppnuðust vel. ^^ý-^té^ ^/ ^X* &1rWU>'PW -t- -fl^ LAUSNIR SEM TRYGGJA ARANGUR: Gutenberg þjonar viðskiptavinum sinum i öllu er viðkemur prentun: raðgjöf, hönnun og umbroti, offseti og stafrænni prentun, bókbandi og dreifingu. Nær væri að tala um miðlunarfyrirtæki því Gutenberg hefur óhikað sótf inn á ný svið í takt við nýja tíma og býður margvislega þjónustu umfram hið hefðbundna prentverk. Dæmi uiii það eru ePóstur Gutenbergs og þjónusta tengd markpósti sem nýtur stöðugt meiri vinsælda. Gutenberg Gutenberg ehf. Síðumúla 16 108 Reykjavík Siml 545 4400 Fax 545 4401 ¦43-