Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Vķsbending

Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 51. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Vķsbending

						Géngisþróun hlutabréfa (ISK)

¦ Velta

100.000.000

90.000.000

80.000.000 -\

70.000.000

60.000.000

50.000.000

40.000.000

30.000.000

20.000.000

10.000.000

¦Gengi

25-jún-04.

2 milljatða Bkuldabréfautboð Bakkavðr Group,

SUBkkað 18/06/04 um 2.5 milljarða

Eignarhlutir I Geest hækkar í 20.03%

28-May-04

Sakkavar Group plkynnir um kaup á 10 27% I Green

09-des-04:

BakkavOr Group tilkynnir hugsanleg kaup á Geest

0

jan

01

60

ágú.01

mar.02

sep.02

nóv.03

tilkynningar var ákveðið að kaupa hlutinn í tveimur skrefum.

Fyrst voru 10,3% keypt 28. maí 2004 og svo var hluturinn aukinn

í 20,3% 18. júní. Á innan við þremur vikum var Bakkavör orðin

langstærsti hluthafinn í Geest.

Stjórnendur Bakkavarar máttu ekki tjá sig mikið um

þessi hlutabréfakaup vegna þeirra reglna sem gilda um

upplýsingarskyldu í bresku kauphöllinni. Það stöðvaði hins

vegar ekki fjölmiðla og fjármálamenn sem veltu vöngum yfir

þróuninni. Það eina sem fjölmiðlar fengu út úr Ágústi var að þetta

væri „langtímafjárfesting". Margir fjölmiðlamenn áttu einnig

erfitt með að sjá hvernig fyrirtæki með 2.500 starfsmenn og 138

milljóna punda veltu gæti yfirtekið fyrirtæki með fleiri en 10.000

starfsmenn og veltu upp á 902 milljónir punda. „Þegar maður

segir ekki neitt við fjölmiðla fara þeir að spekúlera og niðurstaða

þeirra var, réttilega í sjálfu sér, að við hefðum ekkert bolmagn

til þess að kaupa þetta félag og það væri ekki í deiglunni. Það

hentaði okkur ágætlega." Þegar Bakkavör jók stöðu sína í 20%

hlut í Geest þurfti að tilkynna til kauphallarinnar að ekki væri

ætlunin að yfirtaka fyrirtækið á næstu sex mánuðum. Daginn

eftir að þessir sex mánuðir voru liðnir, þann 9. desember 2004,

tilkynnti Bakkavör hins vegar að ætlunin væri að gera kauptilboð

í öll hlutabréf Geest.

Þegar Bakkavör keypti hlut sinn í Geest í maí og júní var

stjórnendum fyrirtækisins ljóst að eitthvað væri í aðsigi. Þeir

létu hins vegar lítið eftir sér hafa. Viðskiptavinir Geest og

Bakkavarar höfðu hins vegar áhuga á því sem var að gerast

og kölluðu bræðurna á fund til sín. „Fyrir þeim var þetta mjög

mikilvægt því að Geest var stærsti birgir margra af stærstu

verslunarkeðjum Bretlands. Ferskvörubransinn er langarðbærasti

hluti viðskiptanna sem stórmarkaðir eru í." Það var hins vegar

almenn ánægja innan geirans með að við værum að kaupa

Geest. „Stærstu viðskiptavinirnir, eins og Tesco og fleiri, voru

mjög ánægðir með að við kæmum að þessu máli sem kaupandi

vegna þess að fyrir þeim er það miklu betri kostur en að fá

fjárfestingarsjóði sem fjárfesta ekkert í rekstrinum og taka alla

peningana út úr honum." Það sama átti við um stjórn félagsins.

„Þegar við vorum búnir að kaupa 20% hlut þá áttum við samskipti

við stjórnendur fyrirtækisins. Við sögðum við þá að við hefðum

áhuga á að kaupa félagið. Það sem var mikilvægt í því var að við

vorum í raun gott félag fyrir Geest, fyrir stjórnendurna, að vera

keypt af." Ástæðan fyrir því er sú að í fyrri uppkaupum hafði

Bakkavör haldið sömu stjórnendum fyrirtækjanna áfram og

ekki farið út í stórfelldar uppsagnir á starfsmönnum. I breskum

fjölmiðlum mátti sjá að þau skilboð komust til skila. Þetta var

mikilvægt. „Það var mjög auðvelt að selja stjórnendunum þessa

hugmynd, þetta var bara spuming um að borga rétta verðið.

Það var mikilvægt fyrir stjórnina, fyrir hluthafana, að þeir gætu

sætt sig við verðið, sem við buðum. Ég held að allir hafi gengið

ánægðir frá því borði. Við sameinuðum þessi fyrirtæki til að búa

til meiri verðmæti fyrir alla og gera eitthvað meira úr fyrirtækinu

en áður en ekki til að skera niður og loka verksmiðjum og

svoleiðis." Þetta var lykilatriði í að yfirtakan væri í raun vinveitt

en ekki óvinveitt.

„ElGIÐ ÞIÐ PENING?"

Það gefur augaleið þegar tiltölulega lítið fy rirtæki ætlar að yfirtaka

miklu stærra fyrirtæki að einhverjir efast um bolmagn dvergsins

til að leggja undir sig risann. Ráðgjafar Geest voru Citigroup og

það var hlutverk þess fyrirtækis að spyrja erfiðu spurninganna.

„Það sem þeir vildu bara fá að vita var: „Eigið þið peninga?" Það

þýðir ekkert að fara út í svona ferli fyrir eitthvert smákompaní

frá fslandi. „Show me the money," sögðu bankamennirnir. Við

bara gerðum það. Við vorum komnir með nauðsynleg gögn frá

fjármögnunaraðilum okkar áður en við fórum á þennan fund. Þá

vorum við komnir með Barclay's og Kaupþing og í raun búnir að

vinna alla vinnuna. Síðasta dæmið var að tala við fyrirtækið og

segja: „Við ætlum að kaupa ykkur"."

Þegar Bakkavör ákvað síðla árs 2003 og í byrjun árs 2004

að fara af alvöru að skoða hvort og hvernig hægt væri að

yfirtaka Geest var Kaupþing fengið til að hafa yfirumsjón

með verkefninu. Aðrir ráðgjafar komu einnig inn í ferlið á

fyrstu stigum, lögfræðingar og endurskoðendur til að skoða

tæknileg atriði við yfirtökuna og mögulegar fjármögnunarleiðir.

Verðbréfafyrirtækið Teather & Greenwood, sem Landsbankinn

keypti nýlega, sá um að „hlusta" markaðinn og kaupa bréfin á

sem hagkvæmastan hátt. Mikilvægasti þátturinn í ferlinu var þó

að fá banka til þess að fjármagna kaupin að stórum hluta, það

var einn stærsti þröskuldurinn á ferlinu. Sfðar í ferlinu voru svo

¦45-

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48