Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1945, Blaðsíða 7

Frjáls verslun - 01.01.1945, Blaðsíða 7
Arni Jónsson frá Múla: Háífníræður maður mátar Aíjekin. Framhaldsgrein inn Louis Zöllner. Þess hefir verið getiö að Louis Zöllner var á yngri árum mikill íþróttamaður. Hann var alla. daga mjög grannholda, en stæltur og léttur á sér að sama skapi. Um tíma stundaði hann mjög hjólreiðar, enda var það mikil tízka undir lok 19. og í byrjun 20. aldar. Var það eitt sinn að þeir Zöllner og vinur hans einn voru saman í Porths- mouth, en áttu báðir heima í Newcastle. Hélt Zöllner því fram að hann gæti verið eins fljótur að fara þá leið á hjóli og hinn með gufuskipi. „Allright vinur“ sagði hinn „far þú á þinn hjóla gæðing um leið og skipið fer. Ég legg undir hundrað pund að skipið verður á undan þér“. Svo tókust þeir í hendur og veðmálið var afgert. Segir ekkert af ferðum veðj enda, En þegar skip- ið renndi upp að bryggju í Newcastle stóð þar prúðbúinn maður og allsólíkur því að hann hefði nokkurn tíma hjólað hundruð kílómetra eftir rykugum þjóðvegum. Hinn tók ósigri sínum vit- anlega eins og enskum gentlemanni sæmdi, fékk Zöllner hundrað pundin brosandi, tók í hendina á honum og sagði „Óska þér til hamingju, vinur, þú ert vel að þessu kominn“. Ég veit ekki livort Zöllner lék nokkurn tíma knattspyrnu, en hann hafði brennandi áhuga á þeirri íþrótt. Hann var mjög lengi í stjórn „Knattspyrnufélagsins“ í Newcastle, — New castle Football club. — Þetta er ekki frekar en aðrir slíkir klúbbar í Englandi, félagsskapur knattspyrnumanna, heldur, ef svo mætti segja knattspyrnuútgerðarmanna. í Englandi eru þeir menn, sem hafa knattspyrnu að atvinnu all f jöl- menn stétt og fá þeir sem framarlega standa í íþrótt sinni geysihá laun. Nú er þa«> hverri borg hið mesta metnaðarmál að eiga góða knatt- spyrnusveit. Og „útgerðárfélaginu“ hið mesta hagsmunamál að stjórnendur þess séu veiðiklær, natnir að koma auga á efnilega menn í íþróttinni og útsmognir að klófesta þá á undan öðrum. Svona félög eru rekin eins og hver önnur kaup FR.TÁLS VERZLUN sýsla og mest undir því komið að stjórnendurnir séu árvakrir og slyngir kaupsýslumenn. Zöllner haföi mikla ánægju af að horfa á knattspyrnu. En hitt var honum þó fyrst og fremst keppikefli að klúbburinn hans hefði altaf úrvalsliði á að skipa, svo að þeir sem héldu félagsskapnum uppi þyrftu hvorki að bera kinnroða fyrir sinni sveit nú vera alltaf að „spýta í byssuna“. Til íþrótta má það sennilega teljast að vera listaskrifari, en það var Louis Zöllner einhver hinn mesti, enda til hans jafnað í þeirri grein. Iíöndin var svo hreinleg, jöfn og áferðafalleg að undrum sætti. Og skipti ek'ki máli, að því levti, hvort hann skrifaði snarhönd í orðsins réttu merkingu eða tók sig til og skrifaði fegurðar- skrift. Hann var einnig mjög eftirgangssamur um að allt sem skrifstofan sendi frá sér, svo sem reikningar, bréf, eða hvað sem var, væri hrein- legt. Það hafði komið fyrir framan af árum, að hann tók nýráðna skrifara jafnvel bókhaldara og sendi þá til skriftarkennara, ef honum líkaði ekki handbragð þeirra eða frágangur- Ég var alltaf á nálum að ég yrði sendur til kennslukonu næsta dag, ao læra að skrifa. En það slarkaðist þó einhvern veginn sí. Enda var þá mikið farið að nota skrifvélar. En svo var líka þannig búið í hendurnar á mönnum, að það var eins og sjálf- gefið að vanda sig. Allur pappír, sem notaður var, hvort sem var bréfapappír, vörureikningar, farmskrár, eða hvað sem var, var af fínustu teg- und, marg-falt dýrara en venjulegt er að nota á skrifstofum. Hálfníræður maður mátar Aljekin. Að endingu ætla ég svo að minnast örfáum orðum á þá íþrótt, sem lengi mun halda nafni lians á lofti og það langt út yfir takmörk þeirrar borgar sem ævistarf hans hefur verið unnið í Það er skákíþróttin. Þykir mér rétt að þar tali, þeir sem vel fróðir mega teljast í þessum efnum. 7

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.