Frjáls verslun - 01.02.1952, Blaðsíða 26
Gunnþórunn I. Hnlldórs-
dóttir kaupkona varð áll-
ræð 9. janúar s.l. Hún er
fædd hér í Reykjavík ár-
ið 1872. Flestir landsmenn
kannast við hana sem Gunn-
þórunni leikkonu, því að
gyðju leiklistarinnar hefur
hún þjónað í meira en hálfa
öld. og framar öðrum hef-
ur hún verið ieikkonn Reyk-
víkinga öll þessi ár.
Gunnþórunn stofnsetti
vefnaðarvöruverzlun hér í ba) árið 1906 í félagi við
Guðrúnu Jónasson. og hafa þær starfrækl verzlunina
saman síðan. Er verzlunin nú til húsa í Eimskipafé-
lagshúsinu. Hefur hún ávallt verið rekin með miklum
myndarbrag og dugnaði.
Blaðið árnar henni allra heilla með þetta merkis-
afmæli.
Sigurjón Jónsson verzlun-
arstjóri átli 75 ára afmadi
19. janúar s.E Hann er Ár-
nesingur að ætterni, fæddur
að Stóra-Ármóti í Flóa.
Ungur að árum réðst hann
í þjónustu verzlunar Geirs
Zoéga, en hún er ein elzta
starfandi verzlun landsins.
Hann hefur nú veitt þeirri
verzlun forstöðu um 35 ára
skeið og rekið fyrirtækið
með árvekni og dugnaði.
Sigurjón hefur tekið virkan þátt í félagsmálum
kaupsýslumanna hér í bæ og verið falin trúnaðarstörf
í þágu stéttarinnar. Þvkir hann alls staðar hinn trausti
og ábyggilegi félagi. sem allir bera traust til að verð-
leikum.
„Frjáls verzlun“ árnar honum allra heilla á þessum
tímamótum.
Guörún Jónasson kaup-
lcona átti 75 ára afmæli 8.
febrúar s.l. Hún er fa’dd að
Felli í Biskupstungum árið
1877. Hún fluttist til Vest-
urheims með foreldrum
sínum 1888 og dvaldist þar
til 1904. Það ár kom hún
aftur lieim til íslands. Eftir
heimkomuna setti hún á
stofn verzlun, árið 1906, í
í félagi við Gunnþórunni
Halldórsdóttur, og hafa þær
stöllur því starfrækt verzlunina saman í nærfellt hálfa
öld. Hefur farið saman í þessum atvinnurekstri dugn-
aður og áreiðanleiki í starfi og heiðarleiki í (illum við-
skiptum. Guðrún hefur einnig tekið virkan þátt, og hann
ekki óverulegan, í útgerð og landbúnaði.
Guðrún Jónasson er fyrir löngu orðin landskunn fyr-
ir afskipti sín af margskonar mannúðarmálum og öðrum
félagsmálum. Hún gekkst ásamt fleiri konum fyrir
stofnun kvennadeildar Slysavarnarfélags Islands hér í
bæ fyrir tæ|)um 23 árum. Hefur hún verið formaður
þess félagsskaj)ar frá öndverðu og fram á þennan dag.
í bæjarstjórn Reykjavikur hefur hún átt sæti síðan 1928,
fyrst sem aðalfulltrúi til 1946, en síðan sem varabæj-
arfulltrúi.
Væri of langl mál hér að telja upp þau félög og mál-
efni, sem hún hefur lagt lið um dagana, en þau eru
orðin mörg.
Árnar „Frjáls verzlun“ henni allra heilla með af-
mælið.
26
FRJÁLSVERZLUN