Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Blaðsíða 70

Frjáls verslun - 01.03.1989, Blaðsíða 70
A VETTVANGI BESTU AUGLÝSINGAR1988 íslenski markaðsklúbburinn, ÍMARK, gekkst fyrir vali á bestu auglýs- ingum ársins 1988 á auglýsingahátíð sem haldin var á Hótel Islandi í lok febrúar eins og kunnugt er. Þetta er í þriðja skipti sem ÍMARK gengst fyrir vali bestu auglýsinga ársins. Hér er um virðingarvert og þarft framtak að ræða sem ber að þakka. Hins vegar gekk auglýsingahátíð þessi ekki hnökralaust fyrir sig og velta menn því fyrir sér hvort annað fyrirkomulag væri heppilegra en langvinnt borðhald og dansleikur á eftir afhendingu verðlauna. Þeirri hugmynd hefur verið hreyft að markvissara kynni að vera að afhenda verðlaun þessi í vönduðu síðdegisboði þar sem stefnt yrði að því að fá mun fleiri til að vera viðstadda. Mikið vantaði á að full- trúar auglýsenda kæmu á hátíðina. Mun betri þátttaka frá stærstu auglýsendum landsins gæfi samkomu af þessu tagi mun meira gildi. Menn þyrftu a.m.k. að setja sér það mark að fulltrúar mæti frá öllum fyrirtækjum sem hljóta tilnefningu en ekki einungis þeir sem bera sigur úr býtum. Full ástæða er til að hvetja forráða- menn ÍMARK til að halda áfram á þeirri braut að efna til samkeppni um og velja bestu auglýsingar ársins. En þeir mega gjaman huga að þjálla formi sem yrði til að draga fleiri að. Afhending verðlaunanna fær ekki á sig hátíðlegan svip nema fjöldi fólks fagni sigurvegurunum en það vakti athygli hve dræmt var klappað fyrir sigui-- vegurunum sem hugsanlega stafar af langdreginni athöfn og slökum kynni. Frjáls verslun birtir myndir af þeim auglýsingum sem báru sigur úr býtum og teljast athyglisverðustu auglýsingar árs- ins 1988 í hveijum flokki um sig. Tilnefningar voru alls 38 að þessu sinni. Þær skiptust þannig að GBB Aug- lýsingaþjónustan átti 13 tilnefiiingar, ís- lenskaauglýsingastofanhf. (Svonagerum við/Fljótt, fljótt) var með 11 tiinefningar og AUK hf. með 6. Þannig fengu þrjár stærstu stofumar 30 af 38 tilnefningum. Bylgjan og Gott fólk hlutu 2 tilnefningar hvor og eina tilnefningu hlutu: Gylmir hf. (Sameinaða auglýsingastofan), Argus, Auglýsingastofa P & Ó og ÓSA hf. TEXTI: HELGI MAGNÚSSON 70 VEGGSPJÖLD Besta veggspjaldið var valið „Osta- veisla í farangrinum“ sem AUK hf. gerði fyrir Osta - og Smjörsöluna. Gefandi verðlauna var Prentsmiðjan Oddi hf. STUNDUM BANVÆNT STUNDUM TÍMARIT Besta tímaritaauglýsingin var valin „Stundum banvænt, stundum ekki“ sem Svona gerum við (Islenska aug- lýsingastofan hf.)gerði fyrir Land- læknisembættið. Gefandi verðlauna var Frjálst framtak hf. I HAPPDRÆTTI HEFUR ÚTVARP Besta útvarpsauglýs- ingin var valin „Fáðu þér fjarka“ sem Gott fólk gerði fyrir Mark og Mát. Gefandi verð- launa var Stjaman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.